Borðar ekki nóg

Ef marka má myndir af poppdívunni að undanförnu er hún alls ekki að borða nóg til að geta staðið í svona þrekraunum eins og tónleikar eru. Tónleikar í tvo tíma er síst minni áreynsla en tveggja tíma leiksýning þar sem er verið að hamast á sviðinu allan tímann. Eða strangur fótboltaleikur.

Það þýðir ekkert að vera svelta sig á sama tíma og maður ætlar að reyna svona á sig. Það er eins og að ætla í torfærur á bensínlausum bíl. Madonna ætti að fá sér vel af pasta fyrir næstu tónleika.


mbl.is Madonna úrvinda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ofan í anorexiu ruglið er hún svo að æfa í ræktini í 5 til 6 tíma sjö daga í viku,og svo er túrað ofan í það! Ekki skrítið þó e h láti undan!

óli (IP-tala skráð) 2.9.2009 kl. 11:12

2 identicon

sæll Dofri.

Og hér á klakanum þínum er fólk að missa mátt, bæði andlegan og líkamlega útaf stefnu stjórnvalda að þeir sem þurfa á obiberum styrkjum þurfa að halda, hafa ekki lágmarksframfærslu (það er einginn að biðja um meira ). ÖRYRKJAR, ELLILÍFEYRISÞEGAR. EINSTÆÐAR MÆÐUR, OG SVO FRAM.

Margir eru að gefast upp, það fer því miður...... ekki hátt !

Og sem betur fer á þetta ekki við um alla ,

en þessi hópur fer stækkandi.

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 2.9.2009 kl. 11:24

3 identicon

Úff að heyra í ykkur. Hvað vitið þið hvað hún borðar mikið eða hvað hún borðar. Ég er alveg pottþétt viss um það að hún hafi sérfræðinga með sér í mataræðinu eins og öðru.

Gurra (IP-tala skráð) 6.9.2009 kl. 21:27

4 Smámynd: Dofri Hermannsson

Ef svo er Guðríður þá eru þeir greinilega að bregðast henni. Held hún þurfi á aðstoð að halda :)

Dofri Hermannsson, 7.9.2009 kl. 21:15

5 identicon

Ég hef reyndar ekki séð nýlegar myndir af persónunni en hér er á ferðinni yfirborðsleg dómharka á konu sem hefur unnið fyrir peningunum sínum, eða það mætti ætla að mínu mati. Myndir segja margt en ekki allt. Í fréttinni er tekið fram að pobbdívan hafi fallið í yfirlið sökum þreytu og mikils álags. Hvað er hún aftur gömul, hum já mig minnir að hún eigi líka börn. Bara dugleg kona

Gurra (IP-tala skráð) 7.9.2009 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband