Of seint

Að setja DO í ritstjórastól Moggans er aum tilraun til að endurskrifa söguna DO og FLokknum í hag. Auðvitað bera margir sök á því hvernig komið er fyrir íslensku samfélagi en enginn einn maður ber þó meiri ábyrgð á því en DO. En það er of seint.

Blind trú á frjálshyggju, markvisst niðurrif eftirlitsstofnana, röð alvarlegra hagstjórnarmistaka, einkavinavæðing og frændhygli sem teygði anga sína allt upp í Hæstarétt. Allt þetta er lýðum ljóst og þótt Mogginn færi ókeypis inn á hvert heimili myndi það ekki duga DO til að ljúga sig út úr fortíðinni.

Hugsanlega mun honum takast að gera Moggann að málgagni Heimastjórnarflokksins, LÍÚ og annarra einangrunarsinna sem ekki vilja umfjöllun fjölmiðla um báðar hliðar málsins. Það kann að verða markaður fyrir það. En ekki á mínu heimili.

Reyndar spái ég að DO muni sem stjórnandi rústa Mogganum á tiltölulega stuttum tíma. Það sem fortíð hans mun ekki sjá um með fjöldauppsögnum munu stjórnarhættir hans gera.


mbl.is Ekki búið að ráða nýjan ritstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ásgeir Bjarnason

Hvað með eigendur Fréttablaðsins?

Þar er umburðarlyndið ráðandi skilst mér.  Sérstaklega gagnvart siðleysi eigenda sinna.  Þegar svo er, er nú ekki við miklu að búast. 

Samfylkingarfólk ætti að gera hvað það gæti til að losa sig við stimpilinn sem tengir það við þessa verstu mynd siðleysis í viðskiptalífinu.  Þar hefur DO að minsta kosti lengi haft rétt fyrir sér!

Jón Ásgeir Bjarnason, 22.9.2009 kl. 09:54

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Vonandi tekst „flokkseigendum“ Sjálfstæðisflokksins ekki að eyðileggja góðan fjölmiðil.

Man nokkur eftir Pravda? Þurfum við á íslenskri útgáfu að halda? Það væri þá virkilega skítt.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 22.9.2009 kl. 10:36

3 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Ykkur dettur auðvitað endurritun í hug.

Ekki nema von, allt í takt við sjálfið og eins og alkunnar er, hefur hver einungis sjálfan sig sem mælistiku og eindir sínar til skoðunar í hverju máli.

Gæti verið, að búið væri að brjála nokkuð það sem rétt er?

Nokkrar spurningar koma upp.

Hverjir voru í að kæra alla skapaða hluti til ESB dómstóla og eftirlitsstofnana?

Til Hvers?

Höfðu þeir erindi sem erfiði?

Hvar standa þeir nú, sem sögðu það sjálfsagt að VERJA KB banka falli með stórkarlalegum lánum og settu mönnum fyir í því efni?

 Hvenær hætti núverandi Viðskiptaráðherra í klappliði Útrásarinnar (til eru upptökur af ræðum hans við allskonar tækifæri, svo sem fundum Viðskiptaráðs og banka )  Hann var kominn með sigg í lófana vegna langvarandi klapps, líkt og Árni (spegill) Félagsmálaráðherra og bróðir hans, Þórólfur fyrrum borgarstjóri.

Síðan mætti skoða hverjir voru andstæðingar Davíðs um dreifða eignaraðild að bönkunum --Háskólamenn í Hagfræði og núverandi Seðló stjóri vildu ,,Kjölfestufjárfesta" og það klingdi úi eyrum manna í síbylju.

Svona er það nú , ef litið er á málin frá ,,öðrum" sjónarhól, lítur sama landið stundum misjafnlega út.

Mibbó

Bjarni Kjartansson, 22.9.2009 kl. 10:53

4 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Hahaha! þetta er besti brandari sem ég hef heyrt lengi: Dabbi sem yfirhaus í Mogganum. Frábært!

Úrsúla Jünemann, 22.9.2009 kl. 11:41

5 identicon

Alltaf fara vinstri menn á taugum þegar Foringinn kemur nálægt þeim :)

Er ekki samfó búið að njóta verndar fréttablaðsins og dv í skiptum fyrir að horfa framhjá þjófnað eigenda þeirra á almenningi....

Dofri, ertu hættur að bulla um að störf skipti ekki máli og aðalmálið se að vera grænn eða kom kreppan þér inn í raunveruleikann aftur?

Snæbjörn (IP-tala skráð) 22.9.2009 kl. 17:54

6 identicon

Ég sá fyrir hans yfirtöku á Seðlabankanum á sínum tíma; ef þetta verður raunin, þá skal ég hundur heita. DO tekur ekki niður fyrir sig; hann er of hrokafullur til þess. Ég hef - því miður - fengist að kynnast því. Þetta er bara blekking, ekkert annað. Annars skal ég - og ég LOFA því - hætta að fjalla um samfélagsmálefni alfarið!

Skorrdal (IP-tala skráð) 22.9.2009 kl. 18:00

7 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Þórðargleði andstæðinga Sjálfstæðisflokksins yfir hugsanlegum vistaskiptum fyrrum borgarstjóra, forsætisráðherra og seðlabankastjóra er óneitanlega grunsamleg.

Telji þeir aðilar, sem vilja hag Sjálfstæðisflokksins sem verstan, að það skaði flokkinn að fá Davíð í ritstjórastólinn á Morgunablaðinu, þá skyldi maður halda að það væri þeim gleðiefni. Ég mundi í þeirra sporum halda mig til hlés og hlakka yfir því dómgreindarleysi sem eigendur Morgunblaðsins sýna og bíða eftir að sá dagur rynni upp að ég stæði yfir brunarústum hinna hræðilegu stjórnmálasamtaka.

Öll þau skrif og pælingar sem maður hefur séð á undanförnum dögum bera í sér ótta og hrylling í senn. Þeir sem muna karlinn eins og þegar hann var upp á sitt besta, sjá hann fyrir sér sem harðskeyttan og óvæginn andstæðing. Það er hins vegar spurning hvort sá Davíð sem kæmi væri sá Davíð sem fór. Hann er sextiu og eins árs gamall, hefur glímt við veikindi og ekki tel ég að andstaðan gegn honum í vetur hafi hrokkið af honum eins og vatn af gæs.

Þeir sem nú blogga skelfingu lostnir yfir hinni skelfilegu framtíðarsýn held ég að megi halda ró sinni. Sólin kemur upp á morgun og við munum trauðla sjá miklar eða umfangsmiklar breytingar.

En rætist verstu drauma andstæðinga hans, verði hann ritstjóri,og finnist óhreint mjöl í pokahorni þeirra og/eða þeirra flokksfélaga ... ja, þá verður hart í ári hjá smáfuglunum

Flosi Kristjánsson, 22.9.2009 kl. 19:26

8 identicon

@Flosi: "Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins" eru nú rétt tæplega 70% þjóðarinnar, því restin er eins heimsk eins og heimalingar.

Skorrdal (IP-tala skráð) 22.9.2009 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband