Höfuðpaurinn

SkuggiÞað er margt skrifað og skrafað um þátt Davíðs Oddssonar í þessari niðurstöðu. Líklega verða menn aldrei á eitt sáttir um hvað er til í því. Ég held að fólki hætti til að ofmeta mátt hans. Höndin bláa er orðin gigtveik og lúin og strengirnir sem hún heldur um margir trosnaðir eða slitnir.
Hitt er miklu eðlilegra - og málefnalegra - að skoða þátt Davíðs Oddssonar í því séríslenska ástandi sem nú bitnar harðast á landsmönnum.

Það sem kemur harðast niður á fólki í dag er fall krónunnar og himinháir vextir. Þessi staða er komin upp vegna þess vítahrings sem peningamálastefna Seðlabankans hefur komið okkur í.
Seðlabankinn á að halda verðbólgu niðri með því að hækka vexti. Þegar þensla vegna stóriðjuframkvæmda, afnáms bindiskyldu og innrásar banka á íbúðalánamarkaðinn með ódýrt lánsfé fór að keyra upp verðbólguna brást Seðlabankinn við með því að hækka vexti.

Áhættufjárfestar nýttu sér þetta til að græða á vaxtamun og fjárfestu grimmt í íslenskum krónum. Við það hækkaði gengi íslensku krónunnar, magn peninga í umferð jókst enn og Íslendingar gátu keypt erlendar vörur á óeðlilega lágu verði. Viðskiptahallinn við útlönd sló nýtt heimsmet nokkur misseri í röð, alltaf hækkaði Seðlabankinn vextina og alltaf hækkaði gengi krónunnar - þar til blaðran sprakk.

Nú er gengið fallið um 60%, stýrivextir eru yfir 15% og verðbólgan um 14%. Erlend lán fólks hafa vaxið langt umfram áætlanir, flest íslensk lán eru verðtryggð en laun eru það ekki. Þetta er uppskrift að fjárhagslegu hruni almennings.

Á þessu ber Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi seðlabankastjóri höfuðábyrgð. Hann er aðalhöfundur, leikstjóri og aðalleikari í hinni mjög svo raunverulegu og séríslensku kreppu sem nú leggst á landsmenn, auk alþjóðlegrar lánsfjárkreppu.

Það væri nær að ræða þetta en hið lúna þema um Dabba og götustrákana.


mbl.is Erfiðir gjalddagar framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Það er erfitt að meta það tjón sem þessi maður (Davíð) hefur valdið íbúum landsins. Hann verður vonandi síðasti seðlabankastjóri sem er ráðinn á pólitískum forsendum en ekki á faglegum.

Úrsúla Jünemann, 30.9.2008 kl. 14:21

2 identicon

Mitt innlegg er að bankamálaráðherra skipti útaf þeim í stjórn Seðlabankans sem skaðað hafa fjármálastefnuna.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 14:48

3 identicon

Tjónið sem þessi aðgerð mun valda á íslensku efnahagslífi verður gígantískt. Eru menn svo heimskir að halda það að eignaupptaka ríkisins upp á 200 milljarða hafi engin áhrif?
Í Bandaríkjunum eru menn búnir að átta sig á því að þjóðnýtingar gera illt verra. Þetta er eitt það heimskulegasta sem ríkisvaldið getur gert. Þessar aðgerðir hafa gert það að verkum að ástandið í BNA hefur versnað til muna síðustu vikurnar í kjölfar þjóðnýtingar á Freddi og Fannie og AIG.
Til fjandans með þessa Samfylkingu. Til fjandans með þingflokk Samfylkingarinnar hann er meðsekur í grófasta bankaráni sögunnar. Þetta eru þjófar!

IG (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 16:35

4 Smámynd: Hvítur á leik

Dofri! Ekki....EKKI reyna, að setja Samfylkinguna í frígír hér og kenna Dabba um allt. Hvað með ISG, eða Össur og fl. SF er sofandi.

Hvítur á leik, 30.9.2008 kl. 21:21

5 Smámynd: Hvítur á leik

Hvað er að frétta með Fagra Ísland. Þú áttir nú handritið af þessum pésa. Bölvuð hræsni hjá ykkur í SF. Algjör skítahræsni. Afsakaðu orðbragðið en hvað er annað hægt. Þið takið þátt í þessu öllu og gerið EKKERT. Jafnvel ráðherrar ykkar gera ekkert. Iðnaðarráðherra gerir ekkert. Viðskiptaráðherra ekkert...

Hvítur á leik, 30.9.2008 kl. 21:24

6 Smámynd: Sævar Helgason

Það eru 10 fjársterkustu aðilar á landinu aðaleigendur Glitnis :

M.a,  Byko  / Saxhóll  Baugur- Karl Werners / Milestone   Róbert Wessmann/Salt investment

Af hverju hafa þeir ekki lagt þessa peninga út sjálfir til bjargar bankanum ? 

Afhverju er leitað til Seðlabanka Íslands og Ríkisstjórnar um peninga almennings til bjargar frá gjaldþroti Glitnis...?   

Ég er þeirrar skoðunar eftir alla þá umfjöllun sem málið hefur fengið , að allir þessir eigendur hafi ekki átt neinar lausar krónur til að setja í Glitni og hvergi fengið lán úti í hinum stóra heimi....   Það er einfaldlega allt lokað á þá . 

Til að forða gjaldþroti Glitnis hafi þessi leið sem Ríkisstjórnin ásamt Seðlabankanum fór -- verið hin eina færa til að tryggja almannahagsmuni og sparifjáinnistæður ...

Öll hróp fyrrum eigenda um rán á eigum þeirra er að mínu mati til þess eins að milda þeirra eigin æru gagnvart hluthöfum sem nú hafa tapað gríðarlegum fjárhæðum á öllu þeirra spilverki...

Þetta er svona það sem mér finnst

Sævar Helgason, 30.9.2008 kl. 21:42

7 Smámynd: Jónas Jónasson

Það er naumast hægt að kenna einum manni um allt sem miður fer í heiminum !

 Væl frá fullorðnu fólki komið... Farið þið nu bara að vinna ræflarnir ykkar!

Jónas Jónasson, 30.9.2008 kl. 23:13

8 Smámynd: haraldurhar

  Það stendur uppá Samfylkinguna að hafa ekki fyrir löngu skipt út stjórn og stjórnendum Seðlabankans fyrir löngu.   Allir eru sammála að peningmálastefna Seðlabankans sé röng, og fullkomlega áranguslaus en þið gerið ekkert, nema láta leiða ykkur eins og lömb til slátrunar, eins og nú síðast í málefnum Glitnirs. 

Veist þú hvert er hlutverk varaformanns samfylkingannar, ef það er ekki að leysa formanninn af í forföllum?

haraldurhar, 1.10.2008 kl. 00:30

9 identicon

Auli... Það eru hvergi til peningar í heiminum nema í seðlabönkunum eins og er. Bankinn þurfti ekki á hlutafé að halda hann þurfti á láni að halda. Þetta hroðalega ofbeldi sem er beitt þarna mun hafa hrikalegar afleiðingar.

IG (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 08:25

10 Smámynd: Guðmundur Auðunsson

Seðlabankinn hefur auðvitað sinnt skyldu sinni hroðalega illa. En það er rétt hjá þér Dorfi að auðvitað réði Davíð ekkert samfélagsvæðingunni á Glitni. Ekkert annað skynsamlegt var í stöðunni eins og ég segi á bloggi mínu. Það hefði verið fáránlegt ef íslenska ríkið hefði einkavætt tapið en ekki gróðann. Nú verður bara að standa vörð um það að Glitnir verði ekki einkavinavæddur á útsölu. Almenningur á að koma að rekstri bankans um a.m.k. nokkur ár.

Guðmundur Auðunsson, 1.10.2008 kl. 11:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband