Prófkjörsreikningar opnaðir líka?

Auðvitað er sjálfsagt að menn sem hafa allt sitt á þurru gefi líka upp þá styrki sem þeir fengu persónulega í prókjöri sínu. Það þarf enga ríkisendurskoðun til þess. 


mbl.is Óskar úttektar á störfum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Mér finnst nú samfylkingarmenn dansa á ansi grannri línu hvað þetta snertir.

Þið voruð allir í prófkjöri. Þú er e.t.v. tilbúinn að ríða á vaðið. Birta reikninga um hvað prófkjörið kostaði og hverjir lögðu í púkkið.

kveðja 

Kristbjörn Árnason, 13.4.2009 kl. 22:00

2 Smámynd: Emil Örn Kristjánsson

Mér þykir þú ekki sérlega málefnalegur í þessari umræðu, Dofri sæll. Hér standa spjót á manni sem orðið hefur fyrir alls kyns ásökunum og hann leitar leiða til þess að hreinsa sig af þeim áburði. Þú reynir að gera lítið úr þeirri viðleitni með því dreifa umræðunni á allt önnur svið. Höldum okkur við efnið.

Emil Örn Kristjánsson, 14.4.2009 kl. 00:19

3 identicon

Ég sá eftirfarandi ummæli á netinu, skoðið og sannfærist um siðblindu Sjálfstæðisflokksins => Hér er ágæt innsýn í vinnubrögð Flokksins, tekið úr ævisögu Jóns Ólafssonar:

“....Auðvitað má segja að Jón og félagar hafi verið að safna glóðum elds að höfði sér með því að vera með derring við Flokkinn. Það má til dæmis segja frá því að fyrst um sinn eftir að Sýn varð að alvörusjónvarsstöð árið 1995 var heimilsfang hennar á Suðurlandsbraut 4a, lögmannsstofu stjórnarformannsins Sigurðar G. Guðjónssonar. Og þangað komu um það leyti stafnbúar úr Sjálfstæðisflokknum, þeir Sigurður Gísli Pálmason og Páll Kr. Pálsson, fyrir hönd fjármálaráðsins, og sögðu Sigurði að ÍÚ ætti að borga fimm milljónir á ári til Flokksins; sú upphæð væri bara reiknuð út frá stærð og veltu fyrirtækisins. En Sigurður svaraði því til að þeir myndu ekki borga í flokkssjóði. Félagið hefði þá stefnu að styrkja pólitískar hreyfingar í kringum kosningar, og þá með því að bjóða þeim öllum 50% afslátt af auglýsingaverði. Svo að mennirnir gengu tómhentir á dyr.
Jón segir núna að í ljósi sögunnar hefði líklega verið viturlegra af Sigga að borga þetta - bara til að kaupa þeim frið; það hefði verndað þá fyrir miklu veseni. En sjálfur hafði hann átt samtal við Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóra flokksins tæpum áratug fyrr, eða þegar Bylgjan fór í loftið. Þá sagði Kjartan að hann reiknaði með að Flokkurinn myndi fá samskonar afslátt af auglýsingum og hann nyti hjá Morgunblaðinu. En Jóni var vel kunnugt, því hann var þá ritari Varðar, að flokkurinn fékk 100% afslátt í Mogganum. Hann svaraði Kjartani því til að það gæti hann ekki boðið, bara aað þeir fengju hæsta afslátt sem stöðin myndi yfirleitt veita. Jón segir að Kjartani hafi augljóslega mislíkað þetta svar, og að það hafi örugglega átt sinn þátt í því að menn í Valhöll vildu ekki með nokkru móti fallast á að hann yrði varaformaður Varðar ekki löngu síðar..:”

Einar Kárason - Jónsbók. Bls. 421-422

Valsól (IP-tala skráð) 14.4.2009 kl. 02:16

4 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Dofri verður að svara. Annars er þetta eins og hvert annað grjótkast úr glerhúsi 

Kristbjörn Árnason, 14.4.2009 kl. 11:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband