Lýsandi

Þá er formlega búið að skilja á milli borgaranna og hreyfingarinnar. Búið að fella forskeytið niður og eftir stendur ending orðs án tilgangs.

Svona eins og skott án hunds.


mbl.is Hreyfingin verður til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

eða hundur án skotts.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 18.9.2009 kl. 17:03

2 identicon

Ég styð bara þá, sem hafa sýnt mér þá virðingu, að vera í sambandi. Hinir mega éta úldinn...

Skorrdal (IP-tala skráð) 18.9.2009 kl. 17:45

3 identicon

Dofri tjáir sig alltaf um þessi mál eftir ESB línunni. Lífið er ekki ESB.

Andri Sigurðsson (IP-tala skráð) 18.9.2009 kl. 17:49

4 identicon

Þremenningarnir vildu komast á þing og vera engum háðir. Þeim tókst það.

Ég spyr mig ekki lengur, hvort hafði rétt fyrir sér, Þráinn eða þau.

Þau eru engum háð. Vona að enginn taki þau upp á arma sína, til að veita þeim stjórnmálalegt framhaldslíf. Til er orðatiltæki um svona einstaklinga í enskri tungu. Þar koma fyrir fallbyssa, dekk á skipi og lýsingarorðið laus.

Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 18.9.2009 kl. 18:14

5 identicon

"I am guilty"... Ég segi ekki meir, Carlos...

Skorrdal (IP-tala skráð) 18.9.2009 kl. 18:37

6 identicon

Andri Sigurðarson!.

Hvar minnist Dofri á ESB?  Segðu mér það og ég skal gefa þér bjórkassa.

Teitur Atlason (IP-tala skráð) 18.9.2009 kl. 20:23

7 Smámynd: Ingifríður Ragna Skúladóttir

Good riddence!

Ingifríður Ragna Skúladóttir, 18.9.2009 kl. 23:58

8 Smámynd: Þórður Már Jónsson

hahaha, góð samlíking

Þórður Már Jónsson, 19.9.2009 kl. 01:17

9 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Þeir þingmenn sem starfa af heilum hug af hugsjón en hugsa ekki fyrst og fremst um atkvæði fyrir næsta kjörtímabil, eiga heiður skilið.

Það hef ég hvergi séð hjá fjórflokknum og á örugglega ekki eftir að sjá!

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 19.9.2009 kl. 02:18

10 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Umtalaðir þrír þingmenn hafa reynst nytsamir sakleysingjar í pólitískum hráskinnaleik sjálfstæðis og framsóknar sem eru hinir einu raunverulegu þátttakendur í stjórnmálum dagsins. Menn verða að gera sér grein fyrir því að 'skamma stund verður stjórnmálamaður vinsæll á blogginu'. Ég geri ráð fyrir því að með vingulshætti og amatörisma sínum hafi fyrrverandi Borgarhreyfing lagt grunninn að þeirri Búsáhaldargagnbyltinu sem sjálfstæðisflokurinn verður látinn framkvæma. Ég hef ekkert á móti þeim þremenningum og er ekkert viss um að ég hefði staðið mig betur í slíkri eldraun sem gersamlega óþjálfaður einstaklingur innan um klækjarefina og aðstöðumisnotarana. En þeim mistókst og í pólitík er manni harðlega refsað fyrir.

Gísli Ingvarsson, 19.9.2009 kl. 09:25

11 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það sannast á Borgarhreyfingunni að hús án traustrar undirstöðu stendur ekki lengi. Þetta virðast mér vera einskonar tilraunastjórnmál, svona líkt og þegar Davíð og félagar stunduðu tilraunapeningastefnu á okkur íslendingum í upphafi þessarar aldar og við sitjum í súpunni af núna. Hvort Þráinn kemur til baka og verður eini talsmaður Borgarhreyfingarinnar á Alþingi, á svo eftir að koma í ljós. Það breytir því þó ekki að þessi flokkur er í dauðateyjunum sem stjórnmálafl inn á þingi. Verði Borgarhreyfingin hinsvegar algjörlega án þingmanna, og komi fram með skýra og einfalda málefnastefnu, þá er möguleiki að þar myndist  afl þvert á allar flokkalínur um tiltekin málefni, líkt og Hagsmunasamtök heimilanna

Hólmfríður Bjarnadóttir, 19.9.2009 kl. 14:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband