Hvalveiðar í minningarskyni!

Hvalveiðiævintýrið sem hófst í fyrra með því að ellismellir sigldu á gufuskipum út á sundin er orðin hálfgerð sneypuför. Aðeins hafa verið veidd 7 dýr af 30 og langreyðarnar sem gömlu mennirnir skáru í fyrra í nostralgíukasti, með sultardropa í nefi liggja enn í frysti!

Það er kominn tími til að setja punkt aftan við þetta ævintýri og afgreiða þessar veiðar eins og þær eru í raun og veru - hvalveiðar í minningarskyni. Þorrablótsveiðar, svona rétt til að græja súra rengið.


mbl.is Veiðikvóti hrefnuveiðimanna framlengdur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

Það þarf að veiða hvalina eða hreinlega drepa þá og sekkja þeim úti á sjó. það er of mikið af þeim. það sést og fynnst. hvalurinn étur upp allt og sjávarútvegur mun leggjast af ef við losum okkur ekki við um 10-25% af hvölum við landið.

Fannar frá Rifi, 20.9.2007 kl. 17:06

2 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Sorglegt þegar menn sem ætla sér frama í sjórnmálum , finni sig í því að tala svona niður til fólks. Þetta er kannski nýja ásýnd samfylkingarinnar, Marshall og Dofrastíllinn. Það er eitt að hafa skoðun og annað að þurfa að vera með háð því fylgjandi.

Hafa það sem sannara reynist. Það voru veiddar 7 langreyðar af 9.

Og hrefnuveiðitímabilið hefur verið framlengt, sem er hið besta mál.

Svona framsetning er sæmandi framkvæmdastjóra þingflokks samfylkingarinnar eða hvað?

Er ekki nær að setja sig inn í stóra samhengið í umhverfismálum og vistkerfi hafsins og gera eitthvað í því?

Einar Örn Einarsson, 20.9.2007 kl. 17:17

3 Smámynd: Sigurjón

Mér finnst allt í lagi að veiða þessa hvali meðan þeir seljast.  Vinkona mín rekur veitingahús og vill gjarnan hafa hval á boðstólum, en hún veit bara ekki hvar hún nær í ketið.  Það þarf meiri markaðssetningu.

Sigurjón, 20.9.2007 kl. 17:40

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég held að það séu orðin tóm að systir þín fái ekki hvalkjöt Sigurjón, bara hringja í 6903408 sem er síminn hjá Félagi Hrefnuveiðimanna. 
Einnig luma fiskmarkaðir oft á hnísukjöti sem fæst á 10-15 kr kg óaðgert.

En ég tek undir með greinarhöfundi.. þetta voru bara hlægilegar veiðar og eingöngu farnar til þess að þóknast vissum stjórnmálamönnum sem fá dúsur frá Kristjáni Loftsyni í Hval HF..

Óskar Þorkelsson, 20.9.2007 kl. 18:21

5 Smámynd: Theódór Norðkvist

Þessa hvalveiðadellu á að stöðva eins og skot. Það er ekki hægt að setja þetta svona upp að hvalurinn éti frá sægreifunum allan þorskinn (sem væri kannski allt í lagi, því þá þyrftu sægreifarnir að fara að vinna fyrir sér.) Étur hvalurinn ekki líka tegundir sem eru í samkeppni við þorskinn um fæði?

Theódór Norðkvist, 20.9.2007 kl. 23:33

6 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ef Einar meinar eitthvað af því sem hann segir um stóra samhengi hafsins þá hlýtur hann að meina að það eigi að banna loðnu-síld og kolmunnaveiðar við strendur landsins því þessir stofnar halda uppi þorskstofninum en er ofveiddur í dag svo ekkert er eftir ! 

Óskar Þorkelsson, 21.9.2007 kl. 00:16

7 Smámynd: Anton Þór Harðarson

Mér finnst nú að þeir sem hlakka yfir að búið sé að eyðileggja heila atvinngrein, ættu að skammast sín og þeir stjórnmálamenn sem stóðu að þessu fáránlega hvalveiðibanni ættu að biðjast afsökunar á vitleysunni.

Anton Þór Harðarson, 21.9.2007 kl. 08:00

8 identicon

Ég var einn af þessum gömlu köllum með sultardropana í nostalgíukasti sem skáru hval í norðan garranum, en það var svo gaman af þessu Dofri að maður fann ekki fyrir veðrinu enda menn klæddir eftir veðri. Það að vera hvalmaður er svona eins og að vera leikari, einu sinni leikari, alltaf leikari (jafnvel þó þó maður sé kominn í pólitík og hafi sannleikann allaf sín megin), einu sinni hvalmaður alltaf hvalmaður, nostalgía, jú vissulega, minningar um frábærann vinnustað, fullt af skemmtilegu fólki, fallegasti staður á jörðinni.  Ég á enþá soldið fyrsta flokks kjöt, þú veist númerið mitt.     Er ekki annars nóg að starfa í ríkisstjórninni, er kannski rólegt á meðan Ingibjörg friðardúfa er að koma á alheimsfriði?   p.s. við sjáums í réttunum um næstu helgi, þar sem farið verður mjúkum höndum um  kvöldmat morgundagsins. Love and pís man. þinn vinur og aðdáandi, Dóri hvalmaður

og eitt að lokum, við gerum okkur öll gein fyrir því að ef það er ekki markaður fyrir hvalkjöt, þá er næsta víst að það þarf ekki að veiða hval, en hins vegar ef það er markaður fyrir hvalkjöt þá er ekki spurning...

Halldór (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 11:13

9 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Rétt er að minna á að til þess að hvalveiðar geti haft merkjanleg áhrif þarf að veiða hvali í þúsunda tali. Það gleymist sem hvalasérfræðingur sagði mér fyrir mörgum árum, að sé ekkert veitt leitar lífriíkið í sjónum nýs jafnvægis. Þegar hvalirnir fara að svelta fækkar þeim sjálfkrafa.

Eða hvernig fór þorskurinn að því að komast af allar þær aldir sem engir hvalir voru veiddir?

Ómar Ragnarsson, 21.9.2007 kl. 12:54

10 Smámynd: Theódór Norðkvist

Góðir punktar hjá Ómari. Nokkrir tugir veiddra hvala hafa engin áhrif, nema til að eyðileggja markaði okkar erlendis fyrir þorskinn. Nær væri að banna botnvörpuveiðar sem eyðileggja hafsbotninn og grafa þannig undan flestum fiskistofnum.

Theódór Norðkvist, 21.9.2007 kl. 15:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband