Gott framtak hjá Dorrit

Ég sé það á bloggi um þessa frétt að það eru álíka margir sem vilja gera lítið úr viðleitni Dorritar og hinir sem eru ánægðir með hana. Líklega er það svo um allar góðar hugmyndir. Hver hefði trúað því þegar byrjað var að sýna útlendingum hvali að árið 2007 myndu á annað hundrað þúsund ferðamenn kaupa svoleiðis ferðir og stór hluti útlendinga koma hingað gagngert til að sjá hvali?

Þær hugmyndir sem Dorrit reifar hér eru ágætar. Ég hef ekki áður heyrt af þessari viðskiptahugmynd að leigja út geymslur fyrir listasöfn með leyfi til að sýna eitthvað af gripunum. Ef hún gengur upp er það frábært því eins og margir vita hafa listaverk mikið aðdráttarafl. Sýningarsvæði á Vellinum - við hliðina á gömlum flugvelli er því skemmtileg hugmynd sem gæti ásamt öðru s.s. eldfjallaþjóðgarði á Reykjaneshrygg lagt grunn að öflugri starfsemi í ferðaþjónustu.

Sama má segja um heilsulindir. Ég hef nýlega séð magnaðar hugmyndir fólks sem vill á næstu árum byggja Ísland upp sem heilsulindaparadís. Þetta eru raunhæf áform sem ætlunin er að ráðast í á næstu 10-15 árum í samvinnu við sveitarfélög, ferðaþjónustuaðila og heilbrigðisgeirann vítt og breitt um landið.

Dorrit hefur gert kraftaverk fyrir Ísland t.d. með því að tengja íslenskt listafólk við lykilaðila í listheiminum úti í London og víðar. Hvað ætli ímynd landsins hafi grætt mikið á sýningum Vesturports og öðrum sýningum Íslendinga erlendis sem Dorrit hefur með einhverjum hætti komið að?


mbl.is Dorrit: Ísland verði svalari útgáfa af Dubai
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Alma Jenny Guðmundsdóttir

Dofri - allar viðskiptahugmyndir og kynningar á þeim eru af hinu besta! 

Það er með þetta mál eins og svo mörg önnur þessa dagana að þau orka tvímælis í orðsins fyllstu merkingu.

Það er dagljóst að forseti okkar var ,,of mikill þátttakandi" í þeirri þöggun sem hér átti sér stað um raunverulegt ástand.  Þar er ég að tala um sérstakar sendiferðir/heimsóknir forsetans til aðilar sem eiga sér vafasama fortíð og nútíð, með íslenskum fjárglæframönnum, sem án alls efa arðrændu þjóðina.

Það verður að virða þau sjónarmið almennings.

Allur stuðningur við listsköpun er af hinu góða.  Fjárhagslegur stuðningur til listsköpunar kom m.a. frá eigendum bankanna!!!! 

Alma Jenny Guðmundsdóttir, 2.2.2009 kl. 15:32

2 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Bloggaði einmitt um þetta líka, ég er alveg sérstaklega hrifin af nýtingu bygginganna á gamla Beisinum á Keflavíkurflugvelli, sem listaverkageymslur. - Frábær hugmynd.- Og mun efla og auka ferðamannastrauminn hingað,  og auka á hollustu skreppitúra í Íslenskar heilsulindir í leiðinni.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 2.2.2009 kl. 16:03

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

ÞVirkjunin í Svartsengi er gott dæmi um hvað ferðamenn vilja sjá.Tilvonandi Bitruvirkjun með sýningaraðstöðu fyrir listaverk myndi hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn.Það er rangt hjá Dorrit að ferðamenn sækist eftir að sjá eitthvað sem er staðsett á flugvöllum.Fyrir utan Bitruvirkjun myndi virkjunin í Svartsengi,það er Bláa lónið, eða Reykjanesvirkjun vel koma til greina.Nú eða Kárahnjúkavirkjun.Hinsvegar stingur Dorrit ekki upp á miðbæ R.Víkur.Það er rétt hjá henni.Og Kröfluvirkjun gæti vel komið til greina.Eða sÝningaraðstaða í virkjununum við Þjórsá sem vonandi verður tekin ákvörðun um sem fyrst að verði reistar.

Sigurgeir Jónsson, 2.2.2009 kl. 17:39

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það er með ólíkindum hvað fólk er upplekið ef því að gera aðra að andstæðingum sínum eða þeim sem haldið er með fram í rauðann dauðann. Tillögur Dorrit eru allrar skoðunar verðar. Hún er hugmyndarík og djörf og við verðum að nýta allar góðar hugmyndir. Fortíðin er liðin og henni verður ekki breytt, mér finnst kjánalegt að velta sér svo upp úr atvikum í fortíðinni að það trufli nútíðina. Hvað gerði þessi og hvað gerði hinn og hvað með það.

Ég er ekki hissa á að erlendir ferðamenn skuli vilja skoða hvernig við beislum orkuna okkar. Náttúrufegurð í nálægð þessara mannvirkja er líka mikil og þar eru örugglega miklar andstæður fyrir augu þeirra sem ekki hafa séð áður. Það fer líka allt eftir því hvernig leiðsögn er veitt á þessum svæðum.

Við búum í einstöku landi, með einstakri náttúrufegurð, með einstaka orkugjafa, sem við höfum virkjað með einstöku hugviti

Hólmfríður Bjarnadóttir, 2.2.2009 kl. 18:14

5 Smámynd: Kristján Logason

Það er mikill miskilningur ef mann vilja halda því fram að fólk komi hingað til þess að skoða virkjanir eins og Sigurgeri nefnir. Til þess þurfa þær að vera all sérstæðar og það eru íslensku virkjanirnar ekki nema að litlu leyti. Svartsengi er skoðað af því að það er í leiðinni í Bláa lónið. Gaman væri að sjá tölur yfir heimsóknir erlendra ferðamanna í aðrar virkjanir. Held að þær væru sláandi

í þeim könnunum um áhuga manna á landi og þjóð hef ég ekki einu sinni séð minst á virkjun sem áfangastað. Allt slíkt tal er þvi gaspur 

Kristján Logason, 2.2.2009 kl. 18:24

6 Smámynd: Kristján Logason

E.s Það er gott ef við getum auglýst út á við að við höfum breytt hernaðar byggingum í menningar og friðarmiðstöð

Kristján Logason, 2.2.2009 kl. 18:26

7 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Dorrit er flott.. góðar hugmyndir hjá henni og einnig eru þær raunhæfar.

Óskar Þorkelsson, 2.2.2009 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband