Hver mun taka á þessu máli?

Hilmar V Pétursson hjá CCP hefur bent á hvað það er fjarstæðukennt að vera með "sérstaka peninga fyrir 300.000 manns". Það er rétt hjá honum. Þetta er óhemju dýrt fyrir fólk og fyrirtæki og fælir frá okkur erlenda fjárfestingu. Nema auðvitað í jöklabréfum.

Nú eru Malta með 400.000 íbúa og Kýpur með 800.000 íbúa að stíga mikilvæg skref í áttina að upptöku Evru. Hér heima má helst ekki tala um þetta mál.

Sem er athyglisvert þegar maður skoðar viðhorf iðnaðarins til þess að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið. Samkvæmt könnun Capacent á viðhorfum innan Samtaka iðnaðarins er um 62% félaga í SI hlynnt eða mjög hlynnt því að taka upp aðildarviðræður við ESB. 26% eru á móti en 12% er sama.

Þegar viðhorf almennings eftir stjórnmálaskoðunum eru skoðuð kemur líka margt athyglisvert í ljós. Rétt um 60% almennings er hlynntur eða mjög hlynntur því að teknar verði upp aðildarviðræður við ESB. Um 27% eru andvíg.

40% Sjálfstæðismanna eru mjög hlynnt eða hlynnt aðildarviðræðum, rúm 42% Framsóknarmanna eru sama sinnis, 86% Samfylkingarinnar sömuleiðis og rúsínan í pylsuendanum - 61,2% Vinstri grænna vilja taka upp aðildarviðræður við ESB.

Atvinnulífið hefur ítrekað bent á það ýmist með hótunum eða fótunum að krónan sé orðin of lítil fyrir þau. Almenningur í landinu þarf einnig að bera mikinn kostnað af óstöðugri krónu. Það er nauðsynlegt að skoða þessi mál fordómalaust á næsta kjörtímabili eins og Þorsteinn Pálsson orðaði það ágætlega í ræðu á ársþingi Samtaka Iðnaðarins.

Hver mun verða til þess?


mbl.is Kýpur og Malta næst til að taka upp Evruna ?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óðinn Þórisson

Það sem er mest spennandi ef til samstarfs við vg kemur er öruggt að evrópu&myntmálin verða ekki sett á dagskrá eða rædd næstu 4.árin.

Óðinn Þórisson, 16.5.2007 kl. 19:59

2 identicon

Ástæðan fyrir því að menn vilja ekki ræða þetta er sú að krónan er ekki í svona slæmum málum útaf smæð, heldur vegna óstjórnar. Peningamálastjórn Seðlabankans er í engu samræmi við fjármálastjórn ríkisvaldsins. Sem dæmi er það að lofa skattalækkunum um leið stýrivextir eru hækkaðir skólabókardæmi um brot á flestum hagfræðikenningum. Það er verið að hvetja til neyslu og sparnaðar á nákvæmlega sama tíma og það eina sem fæst út úr því eru skuldir á gríðar háum vöxtum.  Eins og raunin er. Yfirdráttur þjóðarinnar er skýrt dæmi um þetta.

Baldvin Esra Einarsson (IP-tala skráð) 16.5.2007 kl. 21:14

3 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Hvaða fordóma eru við að tala um Dorfi? Fordóma gagnvart evrunni? Og hverja þá? Það er frekar að tala um fordóma gagnvart krónunni og þá ekki sízt hjá formanninum þínum sem vegna ótrúlegrar vanþekkingar á efnahagsmálum heldur að krónan sé orsök alls sem aflaga fer hér á landi í þeim efnum.

Og hver segir að það megi ekki tala um þessi mál? Hvaða endemis væl er þetta alltaf hreint í ykkur Evrópusambandssinnum? Hver bannaði ykkur að setja Evrópusambandsaðild að oddinn í kosningabaráttunni? Ekki nokkur einasti maður! Þetta er einfaldlega ótrúlegur endemis aumingjaskapur í ykkur og ekkert annað og þið getið engum um kennt nema ykkur sjálfum.

Hjörtur J. Guðmundsson, 16.5.2007 kl. 22:24

4 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

E.t.v. er þar ólíku saman að jafna - og þó: Sérstakt tungumál fyrir 300 þúsund manns ...

Hlynur Þór Magnússon, 16.5.2007 kl. 23:44

5 Smámynd: Páll Kristbjörnsson

Heyr heyr, Hjörtur. vor Sjálfstæði bróðir í Kristi!

Páll Kristbjörnsson, 17.5.2007 kl. 00:35

6 identicon

Nei Hjörtur.. krónan er ekki orsaka alls. Fyrst má nefna lélega efnahagsstjórn sem verið hefur við líði undanfarin ár og ofþenslu þar sem stóriðjan fer nú fremst í flokki.. og allt stefnir í að áfram verði keyrt með sömu óstjórn ef minnihluti Sjálfstæðis og Framsóknarhækjunnar heldur áfram.. Litla sæta krónan okkar má bara ekki við meiri Framsókn.. Er ekki hægt að leggja þessa sérhagsmuna vinnumiðlun af? Hvernig er það? Og bjarga þá krónunni í leið..

Björg F (IP-tala skráð) 17.5.2007 kl. 01:27

7 Smámynd: Dofri Hermannsson

Talnaspeki Dharma er með ólíkindum, með vasareikni sínum fær hann út þau óskeikulu sannindi að 16.000 heimili verði gjaldþrota ef við tökum upp Evru. Getum við ekki dubbað hann upp í embætti Seðlabankastjóra. Hann gæti þá e.t.v. fundið leið til að láta peningastefnuna virka en það hlýtur hann að vera mér sammála um að hún hefur ekki gert undanfarin ár.

Væri gaman að fá frá honum dálítinn pistil um af hverju hún hefur ekki virkað, hvað hefur farið úrskeiðis og hvað stjórnvöld hefðu mátt gera betur til að halda niðri verðbólgu og vöxtum á Íslandi. Í leiðinni gæti hann kannski bent á leiðir til að auka hagvöxt á hverja unna klukkustund en sú tala er á Íslandi ein sú allra lægsta á öllum vesturlöndum.

Hjötrur er búinn að gleyma mannasiðum sínum og sendir ekkert frá sér nema skæting. Það er grunnt á því góða hjá honum að vanda.

Að lokum. Hilmar V Pétursson í CCP hefur aldrei verið orðaður við Samfylkinguna og mér er til efs að hann sé á nokkurn hátt bundinn stjórnmálaflokki. Hann er hins vegar hluti þeirra 62% leiðtoga í atvinnulífinu sem vilja taka upp aðildarviðræður við ESB til að sjá hvort það yrði til góðs fyrir atvinnulífið í landinu.

Ef Óðinn hefur rétt fyrir sér og Sjálfstæðisflokkur og Vg sjá til þess að þessi mál verða ekki rædd "fordómalaust" næstu 4 árin eins og Þorsteinn Pálsson lagði til, þá held ég að það geti orðið afar gott fyrir Samfylkinguna. 62% af atvinnulífinu er væn sneið rétt eins og 40% sjálfstæðismanna og 62% vinstri grænna er lítill en gómsætur biti.

Dofri Hermannsson, 17.5.2007 kl. 11:04

8 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Dofri:
Það er ódýr leið að afgreiða eitthvað sem skæting til að komast hjá því að þurfa að svara því. Hvar er þessi skætingur? Hvers vegna geturðu ekki tilgreint þessa meintu fordóma sem þú ert að tala um? Þá væntanlega gegn evrunni og Evrópusambandinu? Og hver bannaði Samfylkingunni að setja Evrópusambandsaðild á oddinn í kosningabaráttunni??

Hjörtur J. Guðmundsson, 17.5.2007 kl. 15:20

9 Smámynd: Gísli Hjálmar

Svona svona strákar ... hvernig væri nú bara að fara í kirkju á þessum helgidegi og halda hægðum sínum góðum?

 ... ég bara spyr!

Gísli Hjálmar , 17.5.2007 kl. 15:52

10 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

auðvitað átti að taka upp Evru í gær!  Það hafa bankarnir þegar gert

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 17.5.2007 kl. 23:17

11 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þetta er ástæðan að við getum ekki reytt okkur á og skilgreint það sem þjóðaauðlind að standa bakvið hugvitsfyrirtæki, þau geta farið á morgun og skilið okkur eftir snauð. Það sem við verðum að gera er að nýta auðlindir okkar eins og vatnsrennsli og hitaorkuna. Selja þessa orku hæstbjóðanda með legsta mögulega bindnandi samning. Eftir 25 ár mun verkfræðingar, artkitektar, læknar, og fleiri starfstéttir verða fyrir svakalegum árásum frá Kínverjum sem eru í milljarða tali og allir sætta þeir sig við lág laun. Við verðum að halda utan um fiskinn og aðrar auðlindir til þess að halda stöðugleika. Hættu þessu Evru bulli! Ég spyr, afherju ekki taka upp pundið,dollara eða svissneska franka í staðinn...ekkert ESB bull.

Haraldur Haraldsson, 20.5.2007 kl. 23:23

12 Smámynd: Dofri Hermannsson

Halli. Kom on! Hvað ertu í rauninni að segja? Það er svo ömurlegt að vera á Íslandi að við verðum að reiða okkur á það sem er jarðfast á landinu - annars vill enginn vera hér?

Veistu ekki að öll stóriðjan til samans er aðeins um 1,3% af verðmætasköpun þjóðarbúsins? Að aðeins 0,4% vinnuafls á landinu vinna við stóriðju en 99,6% vinna við "eitthvað annað" - selja bíla, skrifa greinar, hanna, klippa, leika, syngja, rækta, byggja osfrv osfrv.

Það má mín vegna alveg skoða aðra gjaldmiðla en Evru líka, það eina sem ég er á móti er þessi lamandi hræðsla við að skoða almennilega hvaða kostir eru í stöðunni og ræða þá af alvöru.

Það er ljóst að við þurfum stöðugri gjaldmiðil. Viðskiptalífið þarf á því að halda, neytendur þurfa á því að halda. Það er kominn tími til að fólk á Íslandi geti gert áætlanir til lengri tíma en 18 mánaða og stöðugur gjaldmiðill er stórt skref í þá átt.

En ég hef meiri trú á Íslandi og hæfileikum Íslendinga en þetta að við verðum að "halda utan um fiskinn" og selja hverja virkjanlega sprænu og hver til að einhver útlendur fjárfestir líti við okkur. Það er eins og þú sért persónulega nýsloppinn út úr Móðuharðindunum 1783 og hafir ekkert fengið að éta mánuðum saman nema "rót og muru freðna" eins og Megas orðaði það. Svei mér þá!

Dofri Hermannsson, 21.5.2007 kl. 10:00

13 identicon

Af hverju að taka upp Evru???  Af hverju ekki bara ensk pund, norska krónu , danska krónu, dollara.......????

H. Vilberg (IP-tala skráð) 21.5.2007 kl. 22:46

14 Smámynd: Kristján Pétursson

Það sjá allir vitibornir menn að krónan okkar er handónýt mynt,sem setur allt efnahagslíf þjóðarinnar í hættu.Samfylkingin er eini flokkurinn sem hefur kjark og þor til að sækja um inngöngu í ESB.Hið háa gengi krónunnar mun innan tíðar ganga að útflutningsgreinum okkar dauðum.Hvernig haldið þið að fari fyrir þeim, sem hafa tekið lán í erlendum myntum til húsnæðiskaupa þegar stórleg veiking verður gerð á krónunni innan skamms tíma?Þá má nefna svonefnd Jöklabréf,sem ráða  mestu um "   stöðugleika " krónunnar okkar.

Kristján Pétursson, 22.5.2007 kl. 18:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband