25.6.2007 | 11:51
Hjólreiðafólk afgangsstærð í umferðinni
Þó mikið hafi verið gert í að byggja upp hjóla- og göngustíga í borginni frá því sem var fyrir rúmum áratug er enn mjög langt í land. Hjólreiðafólk er afgangsstærð í samgöngumálum, fær 1 metra pláss á göngustígum borgarinnar fyrir umferð í báðar áttir og má vera innan um bílaumferðina sem öllum er ljóst að er ekki til þess fallið að lengja lífdaga hjólreiðafólks.
Það þarf að stórbæta hjólreiðastígakerfið, það á sem allra minnst að vera saman við göngustíga og það á að gilda þar reglan um hægri umferð eins og annars staðar. Þá reglu ætti líka að halda í heiðri þegar hjólað er eftir gangstéttum meðfram bílaumferð.
Það býður hættunni heim þegar hjólreiðafólk hjólar á gangstétt á móti umferð því ökumenn sem eru að beygja inn á aðalbraut líta yfirleitt bara í þá átt sem umferðin kemur úr en gá ekki að hjólandi umferð á gangstéttinni úr hinni áttinni. Það er öllum í hag að hjólandi umferð stefni í sömu átt og bílaumferðin.
Hér er verk að vinna.
Ekið á hjólreiðamann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Varaborgar- fulltrúi og talsmaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar í umhverfis- samgöngu- menningar- og ferðamálum. Leggur áherslu á nýsköpun í atvinnumálum og að ná sátt um náttúruvernd og aðra nýtingu.
dofri@reykjavik.is
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 54
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Áhugavert efni
- Umhverfismál Viðskiptablaðsins
- nattura.is
- Stefán Gíslason
- Sól í Straumi
- Náttúruvaktin
- Jökulsár Skagafjarðar
- Landvernd
- Náttúruverndarsamtök Íslands
- Samfylkingin
- Jóhanna Sigurðardóttir
- Össur Skarphéðinsson
- Björgvin G Siguðsson
- Mörður Árnason
- Steinunn Valdís Óskarsdóttir
- Oddný Sturludóttir
- Dagur B Eggertsson
Bloggvinir
- Græna netið
- Trúnó
- Valgerður Halldórsdóttir
- Ingólfur
- Grumpa
- Sól á Suðurnesjum
- Nýkratar
- Björk Vilhelmsdóttir
- Ómar Ragnarsson
- Vefritid
- Kristján Pétursson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Guðmundur Steingrímsson
- Hlynur Hallsson
- Sigurjón M. Egilsson
- Agnar Freyr Helgason
- Lára Stefánsdóttir
- Hreinn Hreinsson
- Davíð
- Sóley Tómasdóttir
- Ugla Egilsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Dagbjört Hákonardóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Bogi Sævarsson
- Guðmundur Magnússon
- Sigmar Guðmundsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Guðfríður Lilja
- Gunnar Björnsson
- sveinn valgeirsson
- Helgi Seljan
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Agný
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Bjarni Harðarson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Alcan dagbókin
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Páll Einarsson
- Torfi Frans Ólafsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Femínistinn
- Ibba Sig.
- Kári Harðarson
- Margrét Sverrisdóttir
- Haukur Nikulásson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Guðfinnur Sveinsson
- Sveinn Arnarsson
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Sigurður G. Tómasson
- Anna Pála Sverrisdóttir
- Viðar Eggertsson
- Helga Sveinsdóttir
- Þorsteinn Siglaugsson
- Hlynur Kristjánsson
- Morten Lange
- Anna Karlsdóttir
- Elfur Logadóttir
- Alma Joensen
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Haraldur Haraldsson
- Hjalti Már Björnsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ágúst Hjörtur
- Andrés Jónsson
- Ebenezer Þórarinn Böðvarsson
- Ágúst Dalkvist
- Róbert Björnsson
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Landssamtök hjólreiðamanna
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Kristján L. Möller
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jóhann R Guðmundsson
- Púkinn
- Átakshópur um heilbrigða skynsemi í pólitískri umræðu
- Þorgerður Laufey Diðriksdóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Benedikt Karl Gröndal
- Guðný Lára
- Björn Barkarson
- Sölmundur Karl Pálsson
- Guttormur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Hrannar Baldursson
- Ársæll Níelsson
- Gísli
- Steindór Grétar Jónsson
- valdi
- Sara Dögg
- Bárður Ingi Helgason
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Maron Bergmann Jónasson
- Ólafur Loftsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Baldvin Jónsson
- Tómas Þóroddsson
- Haukur Kristinsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Mafía-- Linda Róberts.
- Sigurður Egill Þorvaldsson
- Blog-andinn Eyvar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Stjórnmál
- íd
- Kolfinna Dofradóttir
- Þórður Steinn Guðmunds
- Ívar Pálsson
- Vér Morðingjar
- Kristján Kristjánsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Vestfirðir
- Heiða Þórðar
- Ólafur Fr Mixa
- Gunnlaugur B Ólafsson
- E.R Gunnlaugs
- Ingimar Ingimarsson
- Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Gestur Guðjónsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- gudni.is
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli H. Friðgeirsson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Bleika Eldingin
- Reynir Antonsson
- Bragi Þór Thoroddsen
- Sunna Dóra Möller
- Guðrún Vala Elísdóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Egill
- María Kristjánsdóttir
- Árni "Gamli" Einarsson
- Óskar Þorkelsson
- Haukur Már Helgason
- Gísli Hjálmar
- Magnús Árni Magnússon
- perla voff voff
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Júlíus Brjánsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Hörður Jónasson
- Birna G
- Sæþór Helgi Jensson
- Toshiki Toma
- Steinunn Camilla
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Sigurður Haukur Gíslason
- Ingvar Jónsson
- Bergur Thorberg
- Bjargandi Íslandi
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bandalag atvinnuleikhópa - SL
- Guðrún Birna le Sage de Fontenay
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Kvenfélagið Garpur
- Fiðrildi
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Stefán Örn Viðarsson
- Soffía Valdimarsdóttir
- Sigurður Kaiser
- Helga skjol
- Steinunn Þórisdóttir
- Eyjólfur Ingvi Bjarnason
- Vilberg Tryggvason
- Alfreð Símonarson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hlekkur
- Guðjón H Finnbogason
- Sigurður Valur Sigurðsson
- Eva Benjamínsdóttir
- Madda
- Landvernd
- Jónas Jónasson
- Charles Robert Onken
- maddaman
- Hannibal Garcia Lorca
- Gísli Tryggvason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Rósa Harðardóttir
- Ásbjörg Ísabella Magnúsdóttir
- Þorsteinn Briem
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Pétur Sig
- Sólveig Klara Káradóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Baldvin Jónsson
- Aprílrós
- ESB
- Sigurður Sigurðsson
- Mál 214
- GRAL - Grindvíska Atvinnuleikhúsið
- Bwahahaha...
- hreinsamviska
- Guðjón Baldursson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Sigurbjörg Guðleif
- Gunnar Axel Axelsson
- Kjartan Pálmarsson
- Sema Erla Serdar
- Lúðvík Júlíusson
- Sigurður Hrellir
- Steini Thorst
- Landrover
- Vilberg Helgason
- Baldur Kristjánsson
- Magnús Vignir Árnason
- Möguleikhúsið
- Máni Ragnar Svansson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Þórólfur S. Finnsson
- Ása Björg
- Lilja Ingimundardóttir
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Tinna Jónsdóttir
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Stefán Gíslason
- Adolf Dreitill Dropason
- Arnar Guðmundsson
- Bergur Sigurðsson
- Birgir Þórarinsson
- Björn Halldórsson
- brahim
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hulda Sigurðardóttir
- Kolla
- Kristján Logason
- Loftslag.is
- Magnús Jónasson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Sigurður M Grétarsson
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Þórarinn Eyfjörð
- Þórður Björn Sigurðsson
Athugasemdir
Sammála, sammála og ööö sammála.. Hvorki R-listinn né D hafa staðið sig vel þarna... komast ekki einu sinni aftarlega á merina.. Að gera einhverja hjólreiðastíga meðfram ströndinni og halda því svo fram að það sé átt til að bæta hjólasamgöngur er auðvitað bara djók. Það eru ekki margir sem þurfa að hjóla meðfram ströndinni nema þeir séu að gera það eingöngu útivistarinnar vegna.. það þarf hjólasamgöngur INNI í borginni..
Björg F (IP-tala skráð) 25.6.2007 kl. 16:29
Þetta er alveg rétt. Það mætti komast í tísku að meina það sem sagt er, öllum stundum. Betri leið til minni mengunar og sparnaðar í mannvirkjagerð innan borgarinnar er ekki til. gra alvöru hjólreiðastíga. svo ekki sé minnst á frábæra hreyfingu.
Bjarni Rafn Ingvason (IP-tala skráð) 25.6.2007 kl. 17:47
Ég skil bara ekki hvað borgar- og bæjarmálayfirvöld eru að hugsa með því að draga endalaust lappirnar í þessu mikilvæga máli. Með því að leggja góða hjólreiðastíga er hægt að draga úr mengun og létta álaginu af vegakerfinu.
Theódór Norðkvist, 25.6.2007 kl. 18:38
Tek undir þetta Dorfi.Mér er það óskiljanlegt hvers vegna þessum málaflokk er ekki sinnt betur. Það sjá það allir að aukning á reiðhjólastígum, leiðir til þess að fleiri sjá sér það sem valkost að nýta sér reiðhjól til að komast á milli staða.
Sigurður Eðvaldsson (IP-tala skráð) 25.6.2007 kl. 23:49
Einu sinni fór ég til Rovaniemi í Finnlandi (Lappland heitir það raunar þar norður frá) vegna verkefnis sem ég tók þátt í. Þetta er nú ekki stór bær. Það búa tæplega 60.000 manns þar ef íbúar á öllu svæðinu eru reiknaðir saman. Við þurftum að keyra út í eitt úthverfið til að sækja konu sem var í vinnuhópi með mér og þar fannst mér ég sjá best hvað við erum ótrúlega stutt komin hér á Íslandi í göngu- og hjólastígum. Fyrir mér leit þetta út sem eitthvert lúxushverfi með fullkomnum samgönguæðum jafnt fyrir gangandi fólk sem hjólandi en þeim fannst þetta eðlilegasti hlutur í heimi. Hvenær komumst við eitthvað nálægt þessum þankagangi?
Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 00:02
Það er þakkarvert þegar pólitískir fulltrúar tala vel um hjólreiðar. En ég get ekki verið sammála Dofra um að borgin hafi staðið sig vel í gerð “hjólastíga”. Borgin hefur staðið sig vel í gerð útivistarstíga en hefur nákvæmlega ekkert gert í að bæta samgöngur hjólreiðafólks. R-listinn með Samfylkinguna í broddi fylkingar hafði alla möguleika á því að leggja hjólreiðabrautir í Reykjavík í 12 ár. En það var svo merkilegt að R-listinn gerði ekkert fyrr en Árni Þór í VG barði það í gegn nokkrum mánuðum fyrir fall R-listans að leggja aðgreinda 96 metra hjólreiðabraut við Laugaveg, þá fyrstu á Íslandi. R-listinn vann bókstaflega gegn hagsmunum hjólreiðafólks (líklega væri best að segja Framkvæmdasvið Reykjavíkur). Þau vinnubrögð sem R-listinn hafði í frammi í raun enn í gangi þó nýir stjórnarherrar séu komnir í brúnna.
Landssamtök hjólreiðamanna http://hjol.org hafa margsinnis reynt að fá í gegn breytingu á hönnun gatnamóta en án árangurs . Á ég þar við að ekki verði lagðar sérstakar slysagildrur með köntum og óþarfa beygjum eins og nú er (Pacman-syndrome), heldur verði lagðar beinar hjólreiðabrautir sem þveri akbrautir með eðlilegum hætti með stöðvunarlínum og umferðarljósum.
Verk borgarinnar og samgönguyfirvalda tala sínu máli. Þótt það standi ekki beinlínis í umferðaröryggisáætlun þá má lesa þetta milli línanna og skoða framkvæmdina.
Með því að gera ekkert fyrir hjólreiðafólk þá verður meira til skiptana fyrir vélknúna umferð. Öll hönnun samgöngumannvirkja þarf því ekki að taka mið af öðrum samgönguháttum nema vélknúinni umferð. Vélknúin umferð á því t.d. greiðari leið s.s. með hindrunar- og ljóslausum hægribeygjum framhjá öllum ljósagatnamótum þvert á leiðir gangandi (og hjólandi) vegfarenda. Útgangspunktur í samgönguáætlun gengur út á að greiða fyrir vélknúinni umferð. Til að auðvelda fjáraustur í þá framkvæmd nota menn orð eins og að “bæta umferðaröryggi”. Með því að gera hjólreiðar óaðlaðandi má halda hjólreiðamönnum í skefjum og þar með fækka slysum á þeim. Síðan hafa samgönguyfirvöld með aðstoð Umferðarstofu fengið almenning til að trúa því að ef fólk ætlar að hjóla þá eigi það að vera á gangstéttum þó umferðalög segi annað. Nú er svo komið að flestir ökumenn telja að hjólreiðafólk eigi að vera á gangstéttum. Til að bæta gráu ofan á svart þá eru samgönguyfirvöld farin að kalla gangstéttir “hjóla- og göngustíga”. Góð leið svo ekki þurfi að leggja sérstakar aðgreindar hjólreiðabrautir. R-listinn stóð svo í því að gefa út kort af gangstéttum á höfuðborgarsvæðinu og kalla það “Hjóla- og göngustígakort”. Á erlendum ráðstefnum og fyrir ókunnuga lítur þetta allt mjög vel út. Stórgott samgöngukerfi fyrir gangandi og hjólandi með ótrúlega lágri slysatíðni.
Sannkallaður lygavefur á kostnað gangandi og hjólandi umferðar.
Þar sem ég kemst alltaf í vont skap við tilhugsunina um ástandið þá læt ég staðar numið en í lokin fylgja nokkrar krækjur.
Norsk skýrsla um arðsemi hjólreiðabrauta sé aðeins litið til heilbrigðisþátta.
Athugasemd Landssamtaka hjólreiðamanna við umferðaröryggisáætlun.
Umsögn Landssamtaka hjólreiðamanna við vegalög
Umsögn Landssamtaka hjólreiðamanna við Samgönguáætlun
Samgöngumál í Kaupmannahöfn (video)
Magnús Bergsson, 26.6.2007 kl. 11:07
Það er ein milljón bílastæða í henni Reykjavík einni og er hætt að duga til. Fjöldi bíla eykst ár frá ári..3-4 stk á heimili og núna um helgar myndast 60 - 80 km langar bílalestir á vegum út frá höfuðborginni ,þegar lagt er í ferðalög. Nú eru það risa jeppar með risa hjólhýsi aftan í sem sífellt tegja bílalestirnar lengra og lengra, 20-30 m. lengd/ökumann+farþega.
Sífellt stærri og stærri landsvæði eru tekin undir malbikaðar götur og dugir enganveginn til við að sinna þessum flota sem vex með ógnar hraða .
Síðan allir vöruflutningarnir með risabílum. Strandflutningar aflagðir.
Núverandi gatnakerfi er það vandinn ?
En ég tek undir að úrlausn fyrir hjólreiðafólk hefur orðið útundan...bílinn hefur algjöran forgang .
Þetta er svona innlegg í umræðuna
Sævar Helgason (IP-tala skráð) 26.6.2007 kl. 13:44
Takk fyrir góðar athugasemdir. Sammála því Magnús að breytingarnar á gatnamótum eru hjólreiðamönnum stórhættulegar. Ég hef ekki tölu á öllum þeim skiptum sem ég steyptist á hausinn á Kri-Mi, stundum ofan í götuna þar sem bílarnir á leið upp Kringlumýri voru að beygja vestur Miklubraut. Ég myndi ekki álasa neinum hjólreiðamönnum sem mættu með höggbor að fjarlægja þessar slysagildrur.
Dofri Hermannsson, 26.6.2007 kl. 22:20
Á Skaga er ágætt að hjóla, allur jafnsléttur, engar brekkur og dásamlegt að því leyti en það má margt bæta með stíga og sérstaklega tengingarnar í stígakerfinu. Ég er ekki viss um að mundi þora að hjóla lengur í Reykjavík, ekki nema þá á gangstéttum, það væri auðvitað gaman ef hægt væri að breyta þessu, ég bíð.
Edda Agnarsdóttir, 27.6.2007 kl. 13:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.