2.2.2009 | 15:20
Gott framtak hjá Dorrit
Ég sé það á bloggi um þessa frétt að það eru álíka margir sem vilja gera lítið úr viðleitni Dorritar og hinir sem eru ánægðir með hana. Líklega er það svo um allar góðar hugmyndir. Hver hefði trúað því þegar byrjað var að sýna útlendingum hvali að árið 2007 myndu á annað hundrað þúsund ferðamenn kaupa svoleiðis ferðir og stór hluti útlendinga koma hingað gagngert til að sjá hvali?
Þær hugmyndir sem Dorrit reifar hér eru ágætar. Ég hef ekki áður heyrt af þessari viðskiptahugmynd að leigja út geymslur fyrir listasöfn með leyfi til að sýna eitthvað af gripunum. Ef hún gengur upp er það frábært því eins og margir vita hafa listaverk mikið aðdráttarafl. Sýningarsvæði á Vellinum - við hliðina á gömlum flugvelli er því skemmtileg hugmynd sem gæti ásamt öðru s.s. eldfjallaþjóðgarði á Reykjaneshrygg lagt grunn að öflugri starfsemi í ferðaþjónustu.
Sama má segja um heilsulindir. Ég hef nýlega séð magnaðar hugmyndir fólks sem vill á næstu árum byggja Ísland upp sem heilsulindaparadís. Þetta eru raunhæf áform sem ætlunin er að ráðast í á næstu 10-15 árum í samvinnu við sveitarfélög, ferðaþjónustuaðila og heilbrigðisgeirann vítt og breitt um landið.
Dorrit hefur gert kraftaverk fyrir Ísland t.d. með því að tengja íslenskt listafólk við lykilaðila í listheiminum úti í London og víðar. Hvað ætli ímynd landsins hafi grætt mikið á sýningum Vesturports og öðrum sýningum Íslendinga erlendis sem Dorrit hefur með einhverjum hætti komið að?
Dorrit: Ísland verði svalari útgáfa af Dubai | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Varaborgar- fulltrúi og talsmaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar í umhverfis- samgöngu- menningar- og ferðamálum. Leggur áherslu á nýsköpun í atvinnumálum og að ná sátt um náttúruvernd og aðra nýtingu.
dofri@reykjavik.is
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 54
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Áhugavert efni
- Umhverfismál Viðskiptablaðsins
- nattura.is
- Stefán Gíslason
- Sól í Straumi
- Náttúruvaktin
- Jökulsár Skagafjarðar
- Landvernd
- Náttúruverndarsamtök Íslands
- Samfylkingin
- Jóhanna Sigurðardóttir
- Össur Skarphéðinsson
- Björgvin G Siguðsson
- Mörður Árnason
- Steinunn Valdís Óskarsdóttir
- Oddný Sturludóttir
- Dagur B Eggertsson
Bloggvinir
- Græna netið
- Trúnó
- Valgerður Halldórsdóttir
- Ingólfur
- Grumpa
- Sól á Suðurnesjum
- Nýkratar
- Björk Vilhelmsdóttir
- Ómar Ragnarsson
- Vefritid
- Kristján Pétursson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Guðmundur Steingrímsson
- Hlynur Hallsson
- Sigurjón M. Egilsson
- Agnar Freyr Helgason
- Lára Stefánsdóttir
- Hreinn Hreinsson
- Davíð
- Sóley Tómasdóttir
- Ugla Egilsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Dagbjört Hákonardóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Bogi Sævarsson
- Guðmundur Magnússon
- Sigmar Guðmundsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Guðfríður Lilja
- Gunnar Björnsson
- sveinn valgeirsson
- Helgi Seljan
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Agný
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Bjarni Harðarson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Alcan dagbókin
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Páll Einarsson
- Torfi Frans Ólafsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Femínistinn
- Ibba Sig.
- Kári Harðarson
- Margrét Sverrisdóttir
- Haukur Nikulásson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Guðfinnur Sveinsson
- Sveinn Arnarsson
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Sigurður G. Tómasson
- Anna Pála Sverrisdóttir
- Viðar Eggertsson
- Helga Sveinsdóttir
- Þorsteinn Siglaugsson
- Hlynur Kristjánsson
- Morten Lange
- Anna Karlsdóttir
- Elfur Logadóttir
- Alma Joensen
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Haraldur Haraldsson
- Hjalti Már Björnsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ágúst Hjörtur
- Andrés Jónsson
- Ebenezer Þórarinn Böðvarsson
- Ágúst Dalkvist
- Róbert Björnsson
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Landssamtök hjólreiðamanna
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Kristján L. Möller
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jóhann R Guðmundsson
- Púkinn
- Átakshópur um heilbrigða skynsemi í pólitískri umræðu
- Þorgerður Laufey Diðriksdóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Benedikt Karl Gröndal
- Guðný Lára
- Björn Barkarson
- Sölmundur Karl Pálsson
- Guttormur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Hrannar Baldursson
- Ársæll Níelsson
- Gísli
- Steindór Grétar Jónsson
- valdi
- Sara Dögg
- Bárður Ingi Helgason
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Maron Bergmann Jónasson
- Ólafur Loftsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Baldvin Jónsson
- Tómas Þóroddsson
- Haukur Kristinsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Mafía-- Linda Róberts.
- Sigurður Egill Þorvaldsson
- Blog-andinn Eyvar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Stjórnmál
- íd
- Kolfinna Dofradóttir
- Þórður Steinn Guðmunds
- Ívar Pálsson
- Vér Morðingjar
- Kristján Kristjánsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Vestfirðir
- Heiða Þórðar
- Ólafur Fr Mixa
- Gunnlaugur B Ólafsson
- E.R Gunnlaugs
- Ingimar Ingimarsson
- Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Gestur Guðjónsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- gudni.is
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli H. Friðgeirsson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Bleika Eldingin
- Reynir Antonsson
- Bragi Þór Thoroddsen
- Sunna Dóra Möller
- Guðrún Vala Elísdóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Egill
- María Kristjánsdóttir
- Árni "Gamli" Einarsson
- Óskar Þorkelsson
- Haukur Már Helgason
- Gísli Hjálmar
- Magnús Árni Magnússon
- perla voff voff
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Júlíus Brjánsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Hörður Jónasson
- Birna G
- Sæþór Helgi Jensson
- Toshiki Toma
- Steinunn Camilla
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Sigurður Haukur Gíslason
- Ingvar Jónsson
- Bergur Thorberg
- Bjargandi Íslandi
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bandalag atvinnuleikhópa - SL
- Guðrún Birna le Sage de Fontenay
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Kvenfélagið Garpur
- Fiðrildi
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Stefán Örn Viðarsson
- Soffía Valdimarsdóttir
- Sigurður Kaiser
- Helga skjol
- Steinunn Þórisdóttir
- Eyjólfur Ingvi Bjarnason
- Vilberg Tryggvason
- Alfreð Símonarson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hlekkur
- Guðjón H Finnbogason
- Sigurður Valur Sigurðsson
- Eva Benjamínsdóttir
- Madda
- Landvernd
- Jónas Jónasson
- Charles Robert Onken
- maddaman
- Hannibal Garcia Lorca
- Gísli Tryggvason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Rósa Harðardóttir
- Ásbjörg Ísabella Magnúsdóttir
- Þorsteinn Briem
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Pétur Sig
- Sólveig Klara Káradóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Baldvin Jónsson
- Aprílrós
- ESB
- Sigurður Sigurðsson
- Mál 214
- GRAL - Grindvíska Atvinnuleikhúsið
- Bwahahaha...
- hreinsamviska
- Guðjón Baldursson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Sigurbjörg Guðleif
- Gunnar Axel Axelsson
- Kjartan Pálmarsson
- Sema Erla Serdar
- Lúðvík Júlíusson
- Sigurður Hrellir
- Steini Thorst
- Landrover
- Vilberg Helgason
- Baldur Kristjánsson
- Magnús Vignir Árnason
- Möguleikhúsið
- Máni Ragnar Svansson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Þórólfur S. Finnsson
- Ása Björg
- Lilja Ingimundardóttir
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Tinna Jónsdóttir
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Stefán Gíslason
- Adolf Dreitill Dropason
- Arnar Guðmundsson
- Bergur Sigurðsson
- Birgir Þórarinsson
- Björn Halldórsson
- brahim
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hulda Sigurðardóttir
- Kolla
- Kristján Logason
- Loftslag.is
- Magnús Jónasson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Sigurður M Grétarsson
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Þórarinn Eyfjörð
- Þórður Björn Sigurðsson
Athugasemdir
Dofri - allar viðskiptahugmyndir og kynningar á þeim eru af hinu besta!
Það er með þetta mál eins og svo mörg önnur þessa dagana að þau orka tvímælis í orðsins fyllstu merkingu.
Það er dagljóst að forseti okkar var ,,of mikill þátttakandi" í þeirri þöggun sem hér átti sér stað um raunverulegt ástand. Þar er ég að tala um sérstakar sendiferðir/heimsóknir forsetans til aðilar sem eiga sér vafasama fortíð og nútíð, með íslenskum fjárglæframönnum, sem án alls efa arðrændu þjóðina.
Það verður að virða þau sjónarmið almennings.
Allur stuðningur við listsköpun er af hinu góða. Fjárhagslegur stuðningur til listsköpunar kom m.a. frá eigendum bankanna!!!!
Alma Jenny Guðmundsdóttir, 2.2.2009 kl. 15:32
Bloggaði einmitt um þetta líka, ég er alveg sérstaklega hrifin af nýtingu bygginganna á gamla Beisinum á Keflavíkurflugvelli, sem listaverkageymslur. - Frábær hugmynd.- Og mun efla og auka ferðamannastrauminn hingað, og auka á hollustu skreppitúra í Íslenskar heilsulindir í leiðinni.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 2.2.2009 kl. 16:03
ÞVirkjunin í Svartsengi er gott dæmi um hvað ferðamenn vilja sjá.Tilvonandi Bitruvirkjun með sýningaraðstöðu fyrir listaverk myndi hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn.Það er rangt hjá Dorrit að ferðamenn sækist eftir að sjá eitthvað sem er staðsett á flugvöllum.Fyrir utan Bitruvirkjun myndi virkjunin í Svartsengi,það er Bláa lónið, eða Reykjanesvirkjun vel koma til greina.Nú eða Kárahnjúkavirkjun.Hinsvegar stingur Dorrit ekki upp á miðbæ R.Víkur.Það er rétt hjá henni.Og Kröfluvirkjun gæti vel komið til greina.Eða sÝningaraðstaða í virkjununum við Þjórsá sem vonandi verður tekin ákvörðun um sem fyrst að verði reistar.
Sigurgeir Jónsson, 2.2.2009 kl. 17:39
Það er með ólíkindum hvað fólk er upplekið ef því að gera aðra að andstæðingum sínum eða þeim sem haldið er með fram í rauðann dauðann. Tillögur Dorrit eru allrar skoðunar verðar. Hún er hugmyndarík og djörf og við verðum að nýta allar góðar hugmyndir. Fortíðin er liðin og henni verður ekki breytt, mér finnst kjánalegt að velta sér svo upp úr atvikum í fortíðinni að það trufli nútíðina. Hvað gerði þessi og hvað gerði hinn og hvað með það.
Ég er ekki hissa á að erlendir ferðamenn skuli vilja skoða hvernig við beislum orkuna okkar. Náttúrufegurð í nálægð þessara mannvirkja er líka mikil og þar eru örugglega miklar andstæður fyrir augu þeirra sem ekki hafa séð áður. Það fer líka allt eftir því hvernig leiðsögn er veitt á þessum svæðum.
Við búum í einstöku landi, með einstakri náttúrufegurð, með einstaka orkugjafa, sem við höfum virkjað með einstöku hugviti
Hólmfríður Bjarnadóttir, 2.2.2009 kl. 18:14
Það er mikill miskilningur ef mann vilja halda því fram að fólk komi hingað til þess að skoða virkjanir eins og Sigurgeri nefnir. Til þess þurfa þær að vera all sérstæðar og það eru íslensku virkjanirnar ekki nema að litlu leyti. Svartsengi er skoðað af því að það er í leiðinni í Bláa lónið. Gaman væri að sjá tölur yfir heimsóknir erlendra ferðamanna í aðrar virkjanir. Held að þær væru sláandi
í þeim könnunum um áhuga manna á landi og þjóð hef ég ekki einu sinni séð minst á virkjun sem áfangastað. Allt slíkt tal er þvi gaspur
Kristján Logason, 2.2.2009 kl. 18:24
E.s Það er gott ef við getum auglýst út á við að við höfum breytt hernaðar byggingum í menningar og friðarmiðstöð
Kristján Logason, 2.2.2009 kl. 18:26
Dorrit er flott.. góðar hugmyndir hjá henni og einnig eru þær raunhæfar.
Óskar Þorkelsson, 2.2.2009 kl. 19:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.