9.6.2009 | 15:22
Að græða á daginn og grilla á kvöldin
Fræg eru ummæli hugmyndafræðings Sjálfstæðisflokksins um að flokksmenn væru ekki sérlega pólitískir. Vildu bara hafa einhvern í að sjá um allt slíkt fyrir sig svo þeir sjálfir gætu grætt á daginn og grillað á kvöldin.
Nú er að kvöldi kominn langur dagur Sjálfstæðismanna við stjórn efnahagsmála og þjóðin sjálf endaði á grillinu. Draumaland Sjálfstæðismanna snérist upp í martröð sem ljóst er að almenningur mun þurfa að vakna upp við á hverjum degi um mörg komandi misseri.
Framsóknarflokkurinn fer mikinn og segir það nálgast landráð að ábyrgjast skuldir vegna lágmarksinnistæðna IceSave. Þó mér sé það allt annað en ljúft að gangast í ábyrgð fyrir þessum skuldum verð ég að segja að mér finnst málflutningur Framsóknar nálgast lýðskrum.
Að fara í hart við alþjóðasamfélagið myndi enn auka á vantraust á íslensku efnahagslífi og íslenskum stjórnvöldum. Landið myndi einangrast, lánsloforð yrðu dregin til baka, flótti fólks og fyrirtækja færast í vöxt, afar erfitt að finna erlenda fjárfestingu, kreppan dragast á langinn og hætta aukast á vöruskorti.
Draumaverkefni ríkisstjórna Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, Kárahnjúkavirkjun, þarf brátt að endurfjármagna. Sendi Ísland umheiminum fingurinn getur Landsvirkjun - og önnur orkufyrirtæki einnig - lent í sama lausafjárvanda og bankarnir lentu í síðastliðið haust. Falli lán LV í gjalddaga án þess að fyrirtækið geti endurfjármagnað reynir á ábyrgð ríkisins og Reykjavíkurborgar en skuldir fyrirtækisins eru yfir 400 milljarðar. Geti ríki og borg ekki staðið við skuldir sínar blasir við að lánardrottnar eignast fyrirtækið og eigur þess - orkuauðlindir landsins.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur fram efnahagstillögur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Varaborgar- fulltrúi og talsmaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar í umhverfis- samgöngu- menningar- og ferðamálum. Leggur áherslu á nýsköpun í atvinnumálum og að ná sátt um náttúruvernd og aðra nýtingu.
dofri@reykjavik.is
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Áhugavert efni
- Umhverfismál Viðskiptablaðsins
- nattura.is
- Stefán Gíslason
- Sól í Straumi
- Náttúruvaktin
- Jökulsár Skagafjarðar
- Landvernd
- Náttúruverndarsamtök Íslands
- Samfylkingin
- Jóhanna Sigurðardóttir
- Össur Skarphéðinsson
- Björgvin G Siguðsson
- Mörður Árnason
- Steinunn Valdís Óskarsdóttir
- Oddný Sturludóttir
- Dagur B Eggertsson
Bloggvinir
- Græna netið
- Trúnó
- Valgerður Halldórsdóttir
- Ingólfur
- Grumpa
- Sól á Suðurnesjum
- Nýkratar
- Björk Vilhelmsdóttir
- Ómar Ragnarsson
- Vefritid
- Kristján Pétursson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Guðmundur Steingrímsson
- Hlynur Hallsson
- Sigurjón M. Egilsson
- Agnar Freyr Helgason
- Lára Stefánsdóttir
- Hreinn Hreinsson
- Davíð
- Sóley Tómasdóttir
- Ugla Egilsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Dagbjört Hákonardóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Bogi Sævarsson
- Guðmundur Magnússon
- Sigmar Guðmundsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Guðfríður Lilja
- Gunnar Björnsson
- sveinn valgeirsson
- Helgi Seljan
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Agný
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Bjarni Harðarson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Alcan dagbókin
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Páll Einarsson
- Torfi Frans Ólafsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Femínistinn
- Ibba Sig.
- Kári Harðarson
- Margrét Sverrisdóttir
- Haukur Nikulásson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Guðfinnur Sveinsson
- Sveinn Arnarsson
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Sigurður G. Tómasson
- Anna Pála Sverrisdóttir
- Viðar Eggertsson
- Helga Sveinsdóttir
- Þorsteinn Siglaugsson
- Hlynur Kristjánsson
- Morten Lange
- Anna Karlsdóttir
- Elfur Logadóttir
- Alma Joensen
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Haraldur Haraldsson
- Hjalti Már Björnsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ágúst Hjörtur
- Andrés Jónsson
- Ebenezer Þórarinn Böðvarsson
- Ágúst Dalkvist
- Róbert Björnsson
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Landssamtök hjólreiðamanna
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Kristján L. Möller
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jóhann R Guðmundsson
- Púkinn
- Átakshópur um heilbrigða skynsemi í pólitískri umræðu
- Þorgerður Laufey Diðriksdóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Benedikt Karl Gröndal
- Guðný Lára
- Björn Barkarson
- Sölmundur Karl Pálsson
- Guttormur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Hrannar Baldursson
- Ársæll Níelsson
- Gísli
- Steindór Grétar Jónsson
- valdi
- Sara Dögg
- Bárður Ingi Helgason
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Maron Bergmann Jónasson
- Ólafur Loftsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Baldvin Jónsson
- Tómas Þóroddsson
- Haukur Kristinsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Mafía-- Linda Róberts.
- Sigurður Egill Þorvaldsson
- Blog-andinn Eyvar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Stjórnmál
- íd
- Kolfinna Dofradóttir
- Þórður Steinn Guðmunds
- Ívar Pálsson
- Vér Morðingjar
- Kristján Kristjánsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Vestfirðir
- Heiða Þórðar
- Ólafur Fr Mixa
- Gunnlaugur B Ólafsson
- E.R Gunnlaugs
- Ingimar Ingimarsson
- Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Gestur Guðjónsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- gudni.is
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli H. Friðgeirsson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Bleika Eldingin
- Reynir Antonsson
- Bragi Þór Thoroddsen
- Sunna Dóra Möller
- Guðrún Vala Elísdóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Egill
- María Kristjánsdóttir
- Árni "Gamli" Einarsson
- Óskar Þorkelsson
- Haukur Már Helgason
- Gísli Hjálmar
- Magnús Árni Magnússon
- perla voff voff
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Júlíus Brjánsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Hörður Jónasson
- Birna G
- Sæþór Helgi Jensson
- Toshiki Toma
- Steinunn Camilla
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Sigurður Haukur Gíslason
- Ingvar Jónsson
- Bergur Thorberg
- Bjargandi Íslandi
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bandalag atvinnuleikhópa - SL
- Guðrún Birna le Sage de Fontenay
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Kvenfélagið Garpur
- Fiðrildi
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Stefán Örn Viðarsson
- Soffía Valdimarsdóttir
- Sigurður Kaiser
- Helga skjol
- Steinunn Þórisdóttir
- Eyjólfur Ingvi Bjarnason
- Vilberg Tryggvason
- Alfreð Símonarson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hlekkur
- Guðjón H Finnbogason
- Sigurður Valur Sigurðsson
- Eva Benjamínsdóttir
- Madda
- Landvernd
- Jónas Jónasson
- Charles Robert Onken
- maddaman
- Hannibal Garcia Lorca
- Gísli Tryggvason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Rósa Harðardóttir
- Ásbjörg Ísabella Magnúsdóttir
- Þorsteinn Briem
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Pétur Sig
- Sólveig Klara Káradóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Baldvin Jónsson
- Aprílrós
- ESB
- Sigurður Sigurðsson
- Mál 214
- GRAL - Grindvíska Atvinnuleikhúsið
- Bwahahaha...
- hreinsamviska
- Guðjón Baldursson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Sigurbjörg Guðleif
- Gunnar Axel Axelsson
- Kjartan Pálmarsson
- Sema Erla Serdar
- Lúðvík Júlíusson
- Sigurður Hrellir
- Steini Thorst
- Landrover
- Vilberg Helgason
- Baldur Kristjánsson
- Magnús Vignir Árnason
- Möguleikhúsið
- Máni Ragnar Svansson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Þórólfur S. Finnsson
- Ása Björg
- Lilja Ingimundardóttir
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Tinna Jónsdóttir
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Stefán Gíslason
- Adolf Dreitill Dropason
- Arnar Guðmundsson
- Bergur Sigurðsson
- Birgir Þórarinsson
- Björn Halldórsson
- brahim
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hulda Sigurðardóttir
- Kolla
- Kristján Logason
- Loftslag.is
- Magnús Jónasson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Sigurður M Grétarsson
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Þórarinn Eyfjörð
- Þórður Björn Sigurðsson
Athugasemdir
Ég vil þakka Samfylkingunni fyrir að kokgleypa IceSave-skuldirnar og það án nokkurra mótbára. Bara; Yes, money, okay! Það má greinilega ekki styggja "vinina" í ESB með svoleiðis málaferlum, þ.e. að leita réttar síns út af IceSave.
Dýr er aðgöngumiðinn í ESB, en allt í lagi, þjóðin borgar, og svo geta nokkrir fótgönguliðar Samfylkingarinnar fengið vel borguð sendimannastörf niður í Brussel fyrir svona 70-90.000 Eur á ári, skattfrjálst.
Hafði ekki áhyggjur af Landsvirkjun, þeir eru alltaf að endurfjármagna sig, líkt og önnur stór orkufyrirtæki. Það verður líka búið að borga upp þessar 100 mia.kr. fyrir Kárahnjúkavirkjunina á 16 árum, eftir það malar hún bara gull næstu 70-100 ár á eftir fyrir eigendur sína líkt og Búrfell, Sultartangi, Blönduvirkjun og Sigalda gera nú í dag.
Ég hef nú meiri áhyggjur af þessum 650+ mia.kr. sem þjóðin þarf að borga fyrir IceSave. Eða þessar 1.000 mia.kr. sem vildarvinur Samfylkingarinnar skuldar bankakerfinu hér á landi og munu falla á þjóðina. Þjóðin þarf þó ekki að borga fyrir Kárahnjúkavirkjunina. Það gerir Landsvirkjun með þeim tekjum sem fást fyrir orkusölu.
Nú ef svo ólíklega að ALCOA dytti í hug að taka upp tjaldhælana og fara frá Íslandi, nú þá er einfaldlega hægt að finna aðra orkukaupendur af orkunni frá Kárahnjúkum, hvað með t.d. vetnisframleiðendur, nú eða eins og 10 gagnaver austur á Fjörðum? - eitt í hvern fjörð?
Guðm. Kári Halldórsson (IP-tala skráð) 9.6.2009 kl. 15:55
Icesave málið allt er með Samfylkingar- stimpilinn yfir sig allt fram og til baka. Það komst skriður á það með bréfi Björgvins 13. ágúst 2008 og öðru skömmu síðar, þar sem ítrekuð er staðfesting ábyrgðar ríkisins á umframskuldum tryggingasjóðsins. Síðan hömruðu Samfylkingarráðherrar á ábyrgð okkar allt haustið, allan vetur og loks með afarsamningum við Breta. Ráðherrar Samfylkingar hafa í þremur ríkisstjórnum grafið þessa Icesave- gröf með slíkan atkvæðastyrk að baki að aðrir hafa ekki náð að leiðrétta ósköpun og berjast réttilega á móti. Nú er eina vonin sú að hver þingmaður fari eftir sannfæringu sinni og hafni þessum gjörningi á Alþingi, sem rústar loks ríkiskassanum algerlega ella.
Ívar Pálsson, 9.6.2009 kl. 17:02
Þakka þér fyrir greinargóðan pistil Dofri. Þú heldur þig enn og aftur við að nefna hvergi á nafn flokksins sem þú ert að vinna fyrir, Samfylkinguna. Það er skrýtið, þar sem sá flokkur studdi hvað grimmast við bakið á þeim aðilum sem hafa ruplað héðan og rænt hvað mestum peningum. Um leið og einhver reyndi að festa hendur á þessum náungum, þá reis samfylking upp á afturlappir og varði þessa menn. Það er staðreynd sem enginn reynir að mótmæla.
Viðskiptaráðherra á dögum Ice-Save reikninganna var reyndar Björgvin G. Sigurðsson, Samfylkingunni. Hann var reyndar ekki betur upplýstur um sinn málaflokk en svo, eða öllu heldur, ekki betur treyst en svo, að hann var ekki upplýstur um erfiða stöðu bankanna í ársbyrjun 2008. Það verður að teljast skrýtið.
Utanríkisráðherra þegar hrunið átti sér stað var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Össur Skarphéðinsson í hennar fjarveru. Ekki verður sagt að þar hafi allt verið með felldu. Í morgunblaðinu í dag er t.d. Össur að afsaka sínar gjörðir, og telur að hann hafi ekki getað varið okkur fyrir bretum, því hann var svo upptekinn að verja okkur fyrir hollendingum. Þar er greinilega á ferðinni maður sem getur ekki gengið og tuggið í sömu andrá.
Dofrinn talar um að við verðum að borga o.s.frv. það er rétt upp að vissu marki. Hættan sem af þessum gunguskap núverandi ráðamanna hlýst er sá, að ekki einasta þurfum við að borga skuldir sem allir voru sammála um að við þyrftum að borga, heldur líka skuldir sem við hefðum líklega komist hjá að borga. Það verða líklega mættir hrægammar hingað eftir helgi að hirða leyfarnar.
Þá þarft hvorki þú né aðrir naívir samfylkingarmenn að hafa áhyggjur af lánstrausti, alþjóðasamfélagi, erlendum fjárfestingum eða öðru. Það fer niður um rörið um leið og þessir náungar mæta. Það eru allir sammála um.
Því miður hafa Steingrímur J. og Jóhanna ekki það sem þarf við þessar aðstæður. Þau eru ekki niðurskurðarfólk. Steingrímur talaði um að byggja hér upp "skandinavískt velferðarsamfélag" eins og hann orðaði það sjálfur fyrir bara nokkrum mánuðum. Jóhanna talaði á sama fundi um að halda velferðarkerfinu óbreyttu, helst að bæta í.
Skrýtið að heyra svo Árna Pál tala í kvöld í fréttum um að skera niður í velferðarmálum. Ekki minna skrýtið að heyra allt þetta mal Steingríms J. algerlega í mótssögn við það sem hann sjálfur sagði fyrir bara nokkrum mánuðum.
Er það nokkuð skrýtið að menn segi ...Afsakið meðan ég æli
joi (IP-tala skráð) 9.6.2009 kl. 20:58
Góðan daginn Guðmundur Ívar joi góðir.
Sigurbjörg Jónsdóttir (IP-tala skráð) 10.6.2009 kl. 09:35
„Við höfum vitað það missirum og árum saman að starfsemi í Bretlandi og í Hollandi færi fram á ábyrgð íslenska tryggingarsjóðsins. Innstæður duga ekki íslenska tryggingarsjóðnum og hverjum stendur þá næst að gangast í ábyrgð fyrir verkefninu og fyrir lúkningu skuldanna? Auðvitað okkur sem því ríki þar sem þessir bankar höfðu sveitfesti.“
Árni Páll Árnason 17.11.2008
HVAR VAR UTANRÍKISRÁÐHERRA SAMFYLKINGARINNAR???
HVAR VAR BANKAMÁLARÁÐHERRA SAMFYLKINGARINNAR???
HVAR VAR FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA SAMFYLKINGARINNAR???
HVAR VAR ÞINGLIÐ SAMFYLKINGARINNAR ÖLL ÞESSI ÁR???
Það var hlutverk Alþingismanna og ríkisstjórnar að setja öryggisnet undir fjárhagslegt öryggi þjóðarinnar þegar það sem Árni Páll Árnason þingmaður Samfylkingar upplýsir þarna, varð ljóst.
Það gerði hann ekki né aðrir Alþingismenn. Þar er enginn stikkfrí á Alþingi nér í ríkisstjórnum.
Telji einhver sig vera það var hann ekki né er verður þess að koma að stjórn landsins.
Einungis lyddur og heyglar oka sér undan þeirri ábyrgð sem þeim er falin!
Þeir Alþingismenn sem hvergi þykjast hafa komið nærri, voru þá heldur ekki að vinna vinnuna sína.
Svo einfalt er það!
Varla eru það betri eftirmæli.
Sigurjón Pálsson (IP-tala skráð) 10.6.2009 kl. 14:21
Takk fyrir skemmtilega pistla Dofri. Mér finnst reyndar að þrátt fyrir gleðina sem skrif þín veita mér og öðrum ættir þú, sem talsmaður borgarstjórnarflokks Sf í umhverfis-, samgöngu-, menningar og ferðamálum með áherslu á nýsköpun í atvinnumálum og sátt um náttúruvernd (og aðra nýtingu), að fara að fjalla meira um þau hugðarefni þín hér á síðunni í stað þess að ala á ósætti og óeiningu flokka á milli. Það er ekki skynsamlegt að kalla eftir samstöðu í öðru orðinu og ala á óeiningu í hinu eins og þið pólitíkusar gjarnan gerið. Reyndar væri áhugavert að fá rannsakað hversvegna skrif ykkar (í öllum flokkum) þurfa að vera með þessum hætti, er það til að breiða yfir hugmyndaskort eða bara prakkaraskapur?
Hvar eru pistlar þínir um nýsköpun í atvinnumálum? Væri ekki rétt að draga þá upp og reyna að ná samstöðu um þínar hugmyndir þar?
Ólafur Þórðarson (IP-tala skráð) 10.6.2009 kl. 14:26
Takk fyrir þessa ábendingu Ólafur. Það er auðvitað betra fyrir sálarlífið að tala fyrir jákvæðum hugmyndum frekar en að gagnrýna slæmar. Og gjarna mætti eindrægnin vera meiri og þvert á allar flokkslínur. Við höfum hreinlega ekki efni á sundurlyndi. Ekki síst þess vegna finnst mér dapurt að sjá menn sem vita betur nota Icesave til að ala á óeiningu, reiði og sárindum.
Þú spurðir um nýsköpun í atvinnumálum. Það vill svo skemmtilega til að á morgun hefur göngu sína útvarpsþáttur með hinu lítt frumlega nafni Fimmtudagssíðdegi með Dofra Hermannssyni þar sem verða sagðar góðar fréttir af atvinnulífi, umhverfismálum og jafnvel af velferðarmálum hins sterkara kyns.
Hvet þig til að stilla á Útvarp Sögu FM 99,4 á milli kl 5 og 6 á morgun. Í þennan fyrsta þátt munu koma Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Ólafur B Schram ferðafrömuður.
Dofri Hermannsson, 10.6.2009 kl. 16:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.