Lesið í viðbrögðin

Það er merkilegt að renna yfir viðbrögð á bloggi og í fréttum við afsögn Björgvins G.

Í fyrsta skipti sem ráðherra á Íslandi axlar pólitíska ábyrgð skiptast viðbrögð fólks í nokkur horn. Öllum finnst ákvörðunin rétt og margir segja hana virðingarverða en sumir bæta við að fyrr hefði mátt vera. Þetta myndi ég álíta að væru hin almennu viðbrögð fólks sem engra pólitískra hagsmuna hafa að gæta. Ánægja og von um að fleiri sjái sóma sinn í að fylgja fordæmi Björgvins.

Svo eru þeir sem virðast vera heldur fúlir yfir þessu öllu saman. Þetta er áhugaverður hópur og nær eingöngu skipaður pólitíkusum. Nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Sigurður Kári Kristjánsson, og formaður Vinstri grænna hafa t.d. allir látið að því liggja að þessi afsögn sé bara eitthvert almannatengslatrikk.

Get svo sem ekki sagt að ég hafi haft væntingar um mikla jákvæðni frá Steingrími J. Þótt ég hugsi langt aftur í tímann man ég ekki eftir að hann hafi nokkurn tímann verið ánægður með jákvæð pólitísk tíðindi sem ekki tengdust honum sjálfum eða Vg. Sömuleiðis var fyrirsjáanlegt að Sigurður Kári sæi bara þessa hlið mála. Sjálfstæðismenn virðast ekki skilja hugtakið pólitísk ábyrgð - hvað þá heiðursmannaafsögn.

Hitt er nú verra með Sigmund Davíð frænda minn og ýmsa aðra í hans flokki. Hann hélt ég að væri nógu stór maður til að fagna virðingarverðum og jákvæðum fréttum þótt frá mótherjum kæmu. Það gerði ég þegar Sigmundur var kjörinn formaður Framsóknar og þótt ýmsum þætti furðulegt af mér að fagna jákvæðum breytingum á tilveru mótherjanna fannst mér þetta bara sjálfsagt - nóg væri víst eftir til að bæta í heiminum þótt Framsókn lagaðist agnarögn.

En við erum auðvitað frekar fjarskyldir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tjörvi Dýrfjörð

Guðmundur Árni Stefánsson var fyrstur ráðherra á Íslandi til að segja af sér vegna glapa í starfi þannir að þetta er nú ekki alveg fordæmalaust en kannski umhugsunarefni að þessir tveir koma báðir úr jafnaðarmannaflokkum.

varðandi viðbrögð við afsökn Björgvins og yfirstjórnar FME þá er alveg ljóst að formenn stjórnarandstöðuflokkana eru ekkert yfir sig hrifnir því ef þetta fer nú eitthvað að dreifa sér yfir til Sjálfstæðismanna og kröfum samfélagsins verður mætt með afsökn fjármálaráðherra og seðlabankastjórnar þá er hætt við að óánægðir kjósendur núverandi stjórnarflokka fyrgefi flokknum sínum og snúi aftur heim og sýndarfylgi VG muni hrynja og útkoman í kosningum í vor verði ekki eins glæsileg og SJS er farinn að dreyma um.

Tjörvi Dýrfjörð, 26.1.2009 kl. 01:24

2 identicon

Björgvin er ekki að segja af sér vegna afglapa í starfi. Að axla pólitíska ábyrgð er allt annar hlutur og óþekktur á Íslandi. En mig furðar að enginn fjölmiðill sér ástæðu til að spyrja Árna Matthísen álits.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 08:47

3 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Já, frændgarður þinn er fjölskrúðugur. Vertu ekki alltaf að naggast útí hann Steingrím, þetta er prýðismaður, ég hef þekkt hann lengi. Og ég þekki líka ættmenni Björgvins úr Hafnarfirði þau eru ekki af verri endanum. Hins vegar átti Björgvin auðvitað að segja af sér  um leið af sér og hann komst að því að enginn sagði honum neitt í ríkisstjórninni. Og það er nokkuð langt síðan að hann komst að því.

María Kristjánsdóttir, 26.1.2009 kl. 09:34

4 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Afsögn hans Björgvins kom seint en hún kom. Hann fær stórt prik fyrir þetta. Nú ætti Samfylkingin og VG að stoppa skítkast í garð hvors annars og huga að því hvort og hvernig samvinnan gæti orðið. Þegar fleiri menn (Davíð! Árni!) hafa axlað ábyrgð eða hafa verið sparkað út þá byrja endurreisn þjóðfélagsins. Án spillingar!

Úrsúla Jünemann, 26.1.2009 kl. 10:56

5 identicon

þetta er bara hefðbundinn vinnubrögð samfylkingarinnar. En þetta er allt Framsókn að kenna.

Framsókn skipti um stjórnendur og þá rauk fylgið upp. Samfylkinginginn er flokkur sem stýrist af skoðunarkönnunum. Flokkurinn hrundi í skoðunarkönnunum, og þá fékk Ingibjörg áfall og brást við með að fórna Björgvini Sigurðssyni.  Síðan ætlar hún að eigna sér að reka seðlabakastjóra (sem er svo sem allt í lagi). Verra er að hún sem er mjög alvarlega veik í besta falli ætlar sér að vera forsætisráðherra, þar sem hún er svo valdaskjúk. Hún hefur ekki heilsu í að vera forsætisráðherra en hagsmunir hennar eru mikilvægari en þjóðarinnar.

Síðan situr hún alltaf þjóðarhagmuni umfram hagsmuni flokksins.  Kjaftæði....

Svona veik manneska eins og hún er, fengi ekki að taka við neinu fyrirtæki.  En ég spyr, eru þingmenn samfylkingarinnar alveg sama? ég vona að einhver annar en Ingibjörg taki þá þetta embætti, þá væri mér alveg sama.

jonthor (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 12:26

6 Smámynd: Dofri Hermannsson

Jón Þór - ef þú heitir það. Þú hefur fullan rétt til að halda fram hverri þeirri vitleysu sem þér þóknast á þinni eigin síðu en það færðu ekki hér á þess að fá snuprur fyrir. Af því nú hefur dylgjum þínum verið ágætlega svarað í fréttum ætla ég að láta þessa athugasemd standa en ítreka að ég kæri mig ekki um persónulegar aðdróttanir - allra síst úr launsátri nafnleyndar. Ég birti því hér tölvupóst þinn og IP tölu tölvunnar sem þú skrifaðir úr.

jthh@hotmail.com | IP-tala: 130.208.121.31

Dofri Hermannsson, 26.1.2009 kl. 14:14

7 identicon

sæll Dofri.

ég viðurkenni að ég gekk allt of langt gangvart Ingibjörgu og biðst afsökunar á því.

Hinsvegar er ég harður á því að viðbrögð Samfylkingarinnar á því að kljúfa stjórnina eru eins og ég sit upp.

Fylgishrunið ýtti flokkunum útí aðgerðir sem þeir áttu með réttu að vera löngu vera  búinn að gera.

Samfylkinginn gat rekið allt fjármálaeftirlitið fljótlega eftir bankahrunið en gerið það ekki, og auðvitað eiga þessir ráðherrar að fara fyrir löngu, bæði fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra.  Því gerði samfylkinginn það ekki strax? Því að þeir vildu ekki rugga bátnum, þangað til að framsókn hreinsaði til hjá sér, þá var samfylkinginn stæðsti flokkur landsins. Í dag er flokkurinn orðinn undir 20% og þá varð eitthvað að gerast. 

Og þá var allt gert til að kljúfa stjórnina. Það er dálítið erfitt að kenna Sjálfstæðisflokkunum um allt þegar þingmenn samfylkingarinnar hlaupa út og suður í yfirlýsingum um stjórnarsamstarfið. Ef þú hefur áhuga get ég tekið saman yfirlit um það. 

ég á ekki eftir sakna þessarar stjórnar. Hún var vita gagnslaus.

 Enn og aftur biðst ég afsökunar á því að hafa gengið allt of langt gagnvart IGS en ég held að allt annað sé rétt.

Heiti Jón Þór Helgason og þú finnur bloggsíðu mína á http://www.jonthorh.blog.is/blog/jonthorh/

ég hef ekki áhuga á að vera í felum.

kv.

Jón Þór

jonthor (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 23:06

8 Smámynd: Dofri Hermannsson

Takk fyrir heiðarlegt komment Jón Þór.

Dofri Hermannsson, 26.1.2009 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband