20.1.2009 | 15:06
Fundur annað kvöld
"Ætli gasið nái hingað?" spurði mig virðuleg eldri kona sem sat á bekk suðaustan við Jón Sig á Austurvelli klukkan tæplega eitt í dag. Við tókum tal saman og fólk streymdi að. Hún var komin til að taka þátt í mótmælum, sýna samstöðu með þjóðinni. Sama var uppi á teningnum hjá eldri bónda úr Dalasýslu sem furðar sig á þeim losarabrag sem honum virðist vera á öllum málum.
Brátt var Austurvöllur orðinn fullur af fólki. Hátt í 2000 manns heyrði ég útvarpsmann segja. Fólk með lúðra, gömul kona með alvöru gamaldags hrossabrest, konur börðu potta og pönnur, fólk með fána og mótmælaspjöld, snjóboltum kastað í Alþingishúsið, hávaði, hróp, baráttusöngur. Margir þjóðþekktir einstaklingar, sagnfræðingar, rithöfundar, listafólk, jafnvel einn og einn stjórnmálamaður en enginn úr stjórnarflokkunum nema ég og Þórlindur Kjartansson sýndist mér.
Krafan um kosningar er skýr. Eins og ég hef áður sagt held ég að hún sé bæði sanngjörn og skynsamleg. Eftir hrunið er allt önnur staða í samfélaginu, allt aðrar forsendur og það þarf því allt aðrar áherslur en kosið var um síðast. Nú þarf að setja fókusinn á framtíðina, leggja fram hugmyndir og tillögur að því hvernig best er að koma þjóðinni upp úr kreppunni. Kosningar eru eina leiðin til að gera þetta, auk þess sem allir stjórnmálaflokkar þurfa að endurnýja umboð sitt.
Á morgun kl. 20.30 er fundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík um Samfylkinguna og stjórnarsamstarfið á Hallveigarstígnum. Frummælendur eru Mörður Árnason og Lúðvík Bergvinsson. Formaður Ungra jafnaðarmanna, Anna Pála Sverrisdóttir stjórnar fundi sem ekki er ólíklegt að verði athyglisverður.
Piparúða beitt við þinghúsið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Varaborgar- fulltrúi og talsmaður borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar í umhverfis- samgöngu- menningar- og ferðamálum. Leggur áherslu á nýsköpun í atvinnumálum og að ná sátt um náttúruvernd og aðra nýtingu.
dofri@reykjavik.is
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 54
- Frá upphafi: 490977
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Áhugavert efni
- Umhverfismál Viðskiptablaðsins
- nattura.is
- Stefán Gíslason
- Sól í Straumi
- Náttúruvaktin
- Jökulsár Skagafjarðar
- Landvernd
- Náttúruverndarsamtök Íslands
- Samfylkingin
- Jóhanna Sigurðardóttir
- Össur Skarphéðinsson
- Björgvin G Siguðsson
- Mörður Árnason
- Steinunn Valdís Óskarsdóttir
- Oddný Sturludóttir
- Dagur B Eggertsson
Bloggvinir
- Græna netið
- Trúnó
- Valgerður Halldórsdóttir
- Ingólfur
- Grumpa
- Sól á Suðurnesjum
- Nýkratar
- Björk Vilhelmsdóttir
- Ómar Ragnarsson
- Vefritid
- Kristján Pétursson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Guðmundur Steingrímsson
- Hlynur Hallsson
- Sigurjón M. Egilsson
- Agnar Freyr Helgason
- Lára Stefánsdóttir
- Hreinn Hreinsson
- Davíð
- Sóley Tómasdóttir
- Ugla Egilsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Dagbjört Hákonardóttir
- Villi Asgeirsson
- Sigurður Bogi Sævarsson
- Guðmundur Magnússon
- Sigmar Guðmundsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Guðfríður Lilja
- Gunnar Björnsson
- sveinn valgeirsson
- Helgi Seljan
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Agný
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Bjarni Harðarson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Alcan dagbókin
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingi Björn Sigurðsson
- Áslaug Sigurjónsdóttir
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Páll Einarsson
- Torfi Frans Ólafsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Femínistinn
- Ibba Sig.
- Kári Harðarson
- Margrét Sverrisdóttir
- Haukur Nikulásson
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Guðfinnur Sveinsson
- Sveinn Arnarsson
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Sigurður G. Tómasson
- Anna Pála Sverrisdóttir
- Viðar Eggertsson
- Helga Sveinsdóttir
- Þorsteinn Siglaugsson
- Hlynur Kristjánsson
- Morten Lange
- Anna Karlsdóttir
- Elfur Logadóttir
- Alma Joensen
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Magnús Þorlákur Lúðviksson
- Haraldur Haraldsson
- Hjalti Már Björnsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ágúst Hjörtur
- Andrés Jónsson
- Ebenezer Þórarinn Böðvarsson
- Ágúst Dalkvist
- Róbert Björnsson
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Landssamtök hjólreiðamanna
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Kristján L. Möller
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Jóhann R Guðmundsson
- Púkinn
- Átakshópur um heilbrigða skynsemi í pólitískri umræðu
- Þorgerður Laufey Diðriksdóttir
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Benedikt Karl Gröndal
- Guðný Lára
- Björn Barkarson
- Sölmundur Karl Pálsson
- Guttormur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Hrannar Baldursson
- Ársæll Níelsson
- Gísli
- Steindór Grétar Jónsson
- valdi
- Sara Dögg
- Bárður Ingi Helgason
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Maron Bergmann Jónasson
- Ólafur Loftsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Baldvin Jónsson
- Tómas Þóroddsson
- Haukur Kristinsson
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir
- Mafía-- Linda Róberts.
- Sigurður Egill Þorvaldsson
- Blog-andinn Eyvar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Stjórnmál
- íd
- Kolfinna Dofradóttir
- Þórður Steinn Guðmunds
- Ívar Pálsson
- Vér Morðingjar
- Kristján Kristjánsson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Vestfirðir
- Heiða Þórðar
- Ólafur Fr Mixa
- Gunnlaugur B Ólafsson
- E.R Gunnlaugs
- Ingimar Ingimarsson
- Ungmennadeild Rauða krossins í Reykjavík (URKÍ-R)
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Gestur Guðjónsson
- Elinóra Inga Sigurðardóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- gudni.is
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli H. Friðgeirsson
- Ævar Rafn Kjartansson
- Bleika Eldingin
- Reynir Antonsson
- Bragi Þór Thoroddsen
- Sunna Dóra Möller
- Guðrún Vala Elísdóttir
- Pálmi Gunnarsson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Egill
- María Kristjánsdóttir
- Árni "Gamli" Einarsson
- Óskar Þorkelsson
- Haukur Már Helgason
- Gísli Hjálmar
- Magnús Árni Magnússon
- perla voff voff
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Júlíus Brjánsson
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Hörður Jónasson
- Birna G
- Sæþór Helgi Jensson
- Toshiki Toma
- Steinunn Camilla
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Sigurður Haukur Gíslason
- Ingvar Jónsson
- Bergur Thorberg
- Bjargandi Íslandi
- Kristjana Bjarnadóttir
- Bandalag atvinnuleikhópa - SL
- Guðrún Birna le Sage de Fontenay
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Kvenfélagið Garpur
- Fiðrildi
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Stefán Örn Viðarsson
- Soffía Valdimarsdóttir
- Sigurður Kaiser
- Helga skjol
- Steinunn Þórisdóttir
- Eyjólfur Ingvi Bjarnason
- Vilberg Tryggvason
- Alfreð Símonarson
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hlekkur
- Guðjón H Finnbogason
- Sigurður Valur Sigurðsson
- Eva Benjamínsdóttir
- Madda
- Landvernd
- Jónas Jónasson
- Charles Robert Onken
- maddaman
- Hannibal Garcia Lorca
- Gísli Tryggvason
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Rósa Harðardóttir
- Ásbjörg Ísabella Magnúsdóttir
- Þorsteinn Briem
- Himmalingur
- Ketill Sigurjónsson
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Pétur Sig
- Sólveig Klara Káradóttir
- Vilhjálmur Árnason
- Baldvin Jónsson
- Aprílrós
- ESB
- Sigurður Sigurðsson
- Mál 214
- GRAL - Grindvíska Atvinnuleikhúsið
- Bwahahaha...
- hreinsamviska
- Guðjón Baldursson
- Friðrik Óttar Friðriksson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Sigurbjörg Guðleif
- Gunnar Axel Axelsson
- Kjartan Pálmarsson
- Sema Erla Serdar
- Lúðvík Júlíusson
- Sigurður Hrellir
- Steini Thorst
- Landrover
- Vilberg Helgason
- Baldur Kristjánsson
- Magnús Vignir Árnason
- Möguleikhúsið
- Máni Ragnar Svansson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Þórólfur S. Finnsson
- Ása Björg
- Lilja Ingimundardóttir
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Tinna Jónsdóttir
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Stefán Gíslason
- Adolf Dreitill Dropason
- Arnar Guðmundsson
- Bergur Sigurðsson
- Birgir Þórarinsson
- Björn Halldórsson
- brahim
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Guðrún Jóna Jónsdóttir
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hulda Sigurðardóttir
- Kolla
- Kristján Logason
- Loftslag.is
- Magnús Jónasson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sigríður Inga Sigurjónsdóttir
- Sigurborg Kristín Hannesdóttir
- Sigurður M Grétarsson
- Sveinbjörn Ragnar Árnason
- Þórarinn Eyfjörð
- Þórður Björn Sigurðsson
Athugasemdir
Vonandi dregur til tíðinda á þessum fundi. Þetta nær ekki nokkurri átt. Samfylkingin er að skolast niður í ræsið með Sjálfstæðisflokknum. Nú er lag að ganga til liðs við mótmælendur og taka frumkvæðið í því að skapa nýtt land. það er óþolandi að brennuvargarnir í Sjáfstæðisflokknum séu við stýrði öllu lengur.
Já og svo eitt í viðbót.
Út með Össur. Hann hefur fengið sinn tíma og klúðrað honum. Slappari pólitíkus er vandfundinn. Hann á bara að þrusa sér á ofur-eftirlaun og láta aðra um að marka stefnuna til betra samfélags.
Teitur Atlason (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 15:26
Þjóðin heldur áfram að láta í sér heyra, ungir sem aldnir, og það verður spennandi að sjá hvað kemur útúr fundinum annað kvöld. Það verður engin vinnufriður í samfélaginu fyrr en boðað hefur verið til kosninga og Samfylkinging verður að sýna dug, þora að vera með í þessu samfélagi okkar og ekki láta þessa hneisu viðgangast lengur. Samfylkingin verður að rífa sig uppúr framsóknarfarinu og vinna fyrir fólkið í landinu, neita að leppa þessa ríkisstjórn og uppræta spillinguna í stjórnkerfinu, viðskiptalífinu og í samfélaginu. Það gerir hún ekki í samvinnu við Sjálfstæðismenn.
Ása (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 15:27
Ég vonar að Samfylkingin mun loksins standa sig og losa sig úr böndum Sjálfstökuflokksins. Þetta hjónaband var aldrei farsælt. Og Teitur, ég er alveg sammála þér: Össur hefur verið með eindæmum slappur. Hann hefur verið eins og vindhani, algjörlega stefnulaus.
Úrsúla Jünemann, 20.1.2009 kl. 17:54
Fagnaðarefni að fundarröð Samfylkingarinar er að hefjast. Þá geta þingmenn talað beint við kjósendur og öfugt. Talað um það sem máli skiptir, framtíðina. Fortíðin er liðin og það er verið að skoða hana og þeirri skoðun verður fram haldið enn um sinn, kannski í nokkur ár.
En nú verður að huga að framtíðinni, hvað er best að gera og hvernig á að bregðast við þessu og hinu. Er best að skipta um ríkisstjórn og er best að kjósa og þá hvenær. Ég hef ekki mótmælt og þekki ekki þá tilfinningu, mundi frekar vilja fylgja eftir umbótum, en vera reið og vera á móti.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 20.1.2009 kl. 18:25
Fylgi Samfylkingarinnar byggðist á sterkum málflutningi frambjóðendanna þar sem áhersla var lögð á samræðustjónmálin svonefnd.
Ætli útifundurinn framan við Alþingishúsið í dag sé birtingarmynd samræðustjórnmála?
Árni Gunnarsson, 20.1.2009 kl. 19:07
Á sínum tíma var það fundur í Alþýðuflokksfélagi Reykjavíkur sem tók skyndilega og óvænt af skarið um slit stjórnarinnar sem flokkurinn var í þá.
Fróðlegt verður að fylgjast með þessu í kvöld.
Ómar Ragnarsson, 20.1.2009 kl. 20:42
Hvernig var það Ómar var þá ekki formaðurinn líka í útlöndum?
Guðjón H Finnbogason, 20.1.2009 kl. 21:33
...eftir alla þessa mánuði eftir hrun og lygar...er erfitt að treysta SF aftur...sorry!
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 20.1.2009 kl. 23:11
Það þarf bara að henda ingibjörgu, lúðvík, kristjáni, össur og ágústi út og fá menn eins og mörð og dofra inn. Menn með sannfæringu
Þá skal ég treysta samfylkingunni.
Vilberg Helgason, 20.1.2009 kl. 23:53
Já fundurinn verður fróðlegur og verður Dofri að vera duglegur að greina frá gangi mála á honum, enda er hann bara fyrir félagsmenn. Gæti farið svo að efasemdarmenn vilji eða láti lokkast að sjá hvað fram fer á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. ESB hangir kannski á spýtunni.
Er hægt að treysta SF eftir "hrun og lygar", spyr Anna. hvað ætlar hún að gera? Fær hún ríkisstjórn VG, Framsóknar og Frjálslyndra eftir kosningar? hvað á að gera við "hrunið og lygarnar" sem rætur eiga að rekja til Framsóknar? Hvað á að gera við frjálshyggju og "innflytjendavandamál" Frjálslyndra? Er Anna með nýja hreyfingu um framboð uppi í ermunum sínum?
Annar valkostur í ríkisstjórnarsamstarfi er ekki auðfundinn en annað hvort þessi stjórn eða vinstri stjórn SF og VG. Hver verður munurinn á þessum stjórnum hvað ESB og Evru varðar? Hvað atvinnuuppbyggingu versus losunarvandann varðar? Hvað verðtryggingu varðar? Hvað stjórnarskrárbreytingar varðar?
Friðrik Þór Guðmundsson, 21.1.2009 kl. 00:27
Friðrik, verðum við ekki að vona að það verði endurnyjun í öllum þessum flokkum fyrir næstu kostningar. Allavega svo um munar þannig að við séum ekki að horfa á þessa skelfilegu kosti sem við höfum ef mynduð yrði ný stjórn án kostninga.
Sagan úr innri koppi segir að Ingibjörg sé hætt, engin vilji Ágúst þannig að líklega þarf að hafa landsfund og kjósa uppá nýtt í formann og varaformann.
Sama gæti orðið uppá teningnum hjá XD að Geir verði fórnað og hvað þá ?
Það eru sem betur fer margar breytur í þessu svo maður geti haldið í vonina.
Svo vonast maður eftir nýju afli með þungaviktarmenn innanborðs sem eru ekki sálu sinni seldir einhverjum af stóru flokkunum eða auðjöfrum.
Vilberg Helgason, 21.1.2009 kl. 01:06
fyrirgefið-snýst framtíð Samfylkingarinnar um hvað sjálfstæðisflokkurinn ákveður á sínum fundum?ég lét blekkjast af"aldraðir eiga betra skilið(jósefsspítalann,sjálfsagt í kojum)fagra ísland(össur berst fyrir virkjununum)endureisn velferðarkerfisins(í boð guðlaugs þórs)ísland og umheimurinn(ríkisstjórnin sér um mannorð okkar!)svo ætlar samfylkingin að leggjast í fundarherferð"EVRÓPUFUNDIR"meðan landið brennur,hvern ANDSKOTANN var ég eiginlega að kjósa yfir mig.
árni aðals (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 02:12
Á þessum fundi verðið þið að samþykkja vantraust á Ingibjörgu Sólrúnu og Björgving G. og krefjast þess að þau segji af sér ráðherra dómi og Ingibjörg líka formennsku. Síðan verðið þið að samþykkja að slíta þessu stjórnarsamstarfi nú þegar.
Þá er kanski von til þess að ég og eflaust margir fleiri geti gengið á ný til stuðnings við flokkinn.
Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 10:27
Já, þið verðið að láta slíta þessu stjórnarsamstarfi. Hvað er Friðrik Þór að meina? Heldur hann að við séum eilíflega dæmd til að búa við þetta flokkakerfi? Búa við þetta gervilýðræði? Framtíðin þó hún virðist myrk í augnablikinu býður upp á ótrúlega möguleika ef þjóðinni heppnast að hugsa alla hluti upp á nýtt.
María Kristjánsdóttir, 21.1.2009 kl. 11:00
Hef verið krati svo lengi sem ég man og er enn. En samfylkingin er farinn. Hef hlustað með æ meiri forundrun á forystu flokksins síðustu mánuði.
Hörður Már Karlsson (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 11:38
Ég meina bara að það verður ERFITT að treysta SF...sbr.
21.01.2009
Djúphreinsun í pólitík
Samfylkingin hóf feril sinn í ríkisstjórninni með því að skipta um skoðun á öllum mikilvægum málum. Hún hætti að vera umhverfisvæn og tók upp ofsatrú frjálshyggjunnar í efnahags- og peningamálum. Kárahnjúkavirkjun var upphaf spennunnar, sem leiddi til hruns. Lesið ágætt blogg Ómars Ragnarssonar um þau mál. Í kosningunum í apríl getur Samfylkingin tæpast boðið upp á sömu þingmannsefni og þau, sem sviku stefnu flokksins eftir síðustu kosningar. Þau eru öll eitruð orðin af skelfilegu stjórnarfari. Samfylkingunni dugir ekki minni djúphreinsun en var hjá Framsókn um síðustu helgi.
21.01.2009
Óeirðir þá og nú
Óeirðirnar í Reykjavík eru ekki sambærilegar við óeirðirnar 1949. Þá voru tvær fylkingar í landinu, með og móti hernum. Hægri menn höfðu þá fasískar sveitir hvítliða til að berja alþýðuna með kylfum. Nú eru engar slíkar fylkingar til, allir eru andvígir ríkisstjórninni. Átökin eru ekki milli tveggja fylkinga,
www.jonas.is
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.1.2009 kl. 20:22
Anna. Flokkurinn er þú og ég. Ég hef aldrei gúterað þá afstöðu að þegar fulltrúar flokks akta gegn skoðun fólksins í honum þá eigi fólkið að fara úr flokknum. Það á þvert á móti að taka til í fulltrúahópnum. Það held ég að verði líka gert.
Dofri Hermannsson, 22.1.2009 kl. 01:17
skil þig Dofri og virði...en stjórnmálafolkkar eru mér ekki trúarbrögð! Lýðræðið er það hinsvegar
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 22.1.2009 kl. 16:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.